Akureyringar gagnrýna val á staðsetningu sýslumanns Sveinn Arnarsson skrifar 8. september 2014 07:30 Akureyringar sætta sig ekki við að sýslumaður flytji til Húsavíkur. fréttablaðið/pjétur
Akureyrarbær gagnrýnir boðaðar breytingar innanríkisráðuneytisins sem fela í sér að aðalskrifstofa sýslumanns færist til Húsavíkur. Akureyrarbær telur aðalskrifstofuna eiga heima á Akureyri sökum fjöldans sem þar býr. „Galin yfirlýsing,“ segir Friðrik Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Norðurþings. Hugmyndir innanríkisráðuneytisins fela í sér breytingar á sýslumannsembættum landsins. Aðalskrifstofa sýslumanns flyst frá Akureyri og verður staðsett á Húsavík. Hins vegar verða sýsluskrifstofur starfandi á Akureyri, Siglufirði og á Dalvík. Þetta er liður í að fækka sýslumannsembættum sem innanríkisráðuneytið tilkynnti fyrir stuttu.Friðrik sigurðssonÞetta sættir Akureyrarbær sig ekki við og hefur sent formlega athugasemd vegna þessa. Leggur Akureyrarbær áherslu á að aðalskrifstofa sýslumanns verði staðsett á Akureyri. „Ekki verður annað séð en að meginmarkmiðum verði best náð með því að staðsetja aðalskrifstofur sýslumanns á Akureyri. Þjónusta við borgarana er tryggð með því að hafa aðalskrifstofur á þeim stað þar sem mestur fjöldi íbúa er en Akureyri er langfjölmennasta sveitarfélagið í umdæminu,“ segir í athugasemd Akureyrarbæjar. Friðrik minnir á að Akureyrarbær hafi ekki haft uppi sömu varnaðarorð þegar ákvörðun var tekin um flutning Fiskistofu frá höfuðborgarsvæðinu. „Þetta er svartur blettur á norðlenska samvinnu sveitarfélaga,“ segir Friðrik. „Það orkar tvímælis að vilja fá stofnanir norður á Akureyri en berjast gegn því að stofnanir séu fluttar til Húsavíkur. Það sýnir að Akureyringar telja sig aðeins geta sótt þjónustu í aðra áttina.“ Hann segir þetta ekki vera gæfuspor í samskiptum sveitarfélaganna.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira