Fréttamenn vísa ásökunum Elínar á bug Jakob Bjarnar skrifar 30. júlí 2013 13:21 Hallgrímur Indriðason hafnar því alfarið að fréttamenn RÚV séu útsendarar Samfylkingarinnar.
Hallgrímur Indriðason, formaður Félags fréttamanna, segir ásakanir Elínar Hirst alþingismanns úr lausu lofti gripnar; starfsmenn fréttastofu Ríkisútvarpsins gæti hlutleysis sem og flestir blaða- og fréttamenn. Vísir greindi í morgun frá ásökunum Elínar Hirst alþingismanns þess efnis að fréttastofa RÚV væri hlutdrægt í umfjöllun sinni um hið svokallaða gallabuxnamál. Ásakanir Elínar eru alvarlegar, ekki síst í ljósi þess að hún var árum saman starfsmaður fréttastofunnar og starfaði hluta þess tíma sem fréttastjóri. "Það er alltaf alvarlegt þegar fréttamenn eru sakaðir um að draga taum einhvers þegar þeir eiga að vera hlutlausir. Sama hver á í hlut. En ég vísa því alfarið á bug að fréttamenn á fréttastofu RÚV séu ekki hlutlausir. Fólk hefur kannski meira orðið vart við ásakanir þess efnis frá fólki sem er hægra megin í stjórnmálunum, og í leiðaraskrifum Morgunblaðsins, en slíkar ásakanir hafa vissulega komið frá öðrum geirum í pólitíkinni líka, en ég vísa því alfarið á bug að fréttamenn á RÚV séu útsendarar einhvers eins stjórnmálaflokks. Sú er ekki raunin." Hallgrímur segir í þessu felast það að hann vísar ásökunum Elínar á bug. Hann á síður von á því að Félag fréttamanna, sem samanstendur af fréttamönnum sem starfa á Ríkisútvarpinu, muni bregðast við þessu máli sem slíku. "En það hafa þær raddir heyrst, eftir því sem ásakanirnar hafa orðið harðari gagnvart okkur að við séum ekki að gæta hlutleysis, þá hefur aukist þrýstingur á að við bregðumst við sem heild, með einhverjum hætti. Og það er eitthvað sem við munum skoða.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Innlent Fleiri fréttir Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Sjá meira