Viðskiptavinirnir hjálpuðu til við flutninginn Sara McMahon skrifar 3. apríl 2013 12:00 Svanhildur Eva Stefánsdóttir. Fréttablaðið/Stefán „
Gamla húsnæðið var orðið of lítið; spilastaflarnir náðu orðið upp í rjáfur og flæddu út á gólf. Við ákváðum því að stækka við okkur og skapa nýja ævintýraveröld á nýjum stað,“ segir Svanhildur Eva Stefánsdóttir, sem á og rekur verslunina Spilavini ásamt Lindu Rós Ragnarsdóttur. Verslunin, sem þær stöllur settu á fót árið 2007 og hefur verið til húsa við Langholtsveg, er flutt í nýtt og stærra húsnæði við Suðurlandsbraut 48 og nýttu Svanhildur Eva og Linda Rós páskafríið í smíðavinnu og flutninga. „Við eyddum öllum páskunum í að hanna og smíða. Fjölskyldurnar tóku þátt í þessu með okkur, þar á meðal börnin okkar sem fóru í málningargallana og máluðu hillur,“ segir Svanhildur Eva og bætir við að viðskiptavinir hafi einnig komið og lagt hönd á plóg: „Við fundum fyrir miklum stuðningi frá viðskiptavinunum og sumir komu og aðstoðuðu okkur við að pakka og taka upp úr kössum.“ Að sögn Svanhildar Evu var mikið lagt upp úr því að endurnýta innréttingarnar úr gamla húsnæðinu og skapa sannkallaða ævintýraveröld fyrir yngstu viðskiptavinina. Þær nutu liðsinnis Lindu Mjallar Stefánsdóttur og Daníels Sigmundssonar við það vandasama verk. „Fólk má vera í búðinni hjá okkur í margar klukkustundir og fá kennslu eða spila spil. Það á að vera fjör að koma til okkar,“ segir hún að lokum. Formleg opnun nýrrar verslunar verður á morgun klukkan 17 og verður þá efnt til spilakvölds og skemmtunar fyrir alla aldurshópa.
Mest lesið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Beckham á spítala Lífið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Menning Fleiri fréttir Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Sjá meira