Innlent

Harma kynningu á víngerð í Kjósinni

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Kjósverjar eru enn ekki farnir að rækta vínvið eins og þessir bændur á Spáni en hafa engu að síður sett sig inn í grundvallaratriði í léttvínsgerð.
Kjósverjar eru enn ekki farnir að rækta vínvið eins og þessir bændur á Spáni en hafa engu að síður sett sig inn í grundvallaratriði í léttvínsgerð. Fréttablaðið/Jón Sigurður
„Þetta var mjög saklaust,“ segir Guðmundur H. Davíðsson, oddviti Kjósarhrepps, um víngerðarkynningu í húsnæði sveitarfélagsins.

Tveir fulltrúar Framfaralistans í hreppsnefnd Kjósar gagnrýndu á síðasta nefndarfundi að víngerðarkynning á vegum fyrirtækisins Ámunnar hefði verið „megin innihald“ síðasta fréttabréfs hreppsins sem dreift er í hús. Kynningin var haldin í Ásgarði þar sem hreppsskrifstofurnar eru.

„Að auglýsa og kynna þess háttar kynningu á almennum viðburði á vegum hreppsins þar sem öll fjölskyldan á erindi, er ekki hægt að una við. Við hörmum því þennan gjörning,“ bókuðu þau Rebekka Kristjánsdóttir og Sigurbjörn Hjaltason.

Guðmundur H. Davíðsson, oddviti Kjósarhrepps.
Oddvitinn mætti

Guðmundur segir að í Kjós hafi að undanförnu verið ræddar leiðir til að íbúar gætu hist og spjallað.

„Þetta var ein kynning sem kom upp í hugann og var framkvæmd af starfsmanni bókasafnsins sem sér um þetta,“ segir Guðmundur sem kveður um tíu manns hafa mætt á kynninguna, þar á meðal var hann sjálfur.

„Mér leist vel á en reyndar þekkti ég þetta fyrir. Eiginlega finnst mér algert grín að þetta sé eitthvert mál. Það er annar hver maður að leika sér eitthvað svona. Það er alveg skaðlaust,“ segir oddvitinn.

Rebekka kristjánsdóttir, varaoddviti Kjósarhrepps.
Nær að stuðla að forvörnum

„Okkur finnst að sveitarfélagið eigi frekar að stuðla að forvörnum en að standa fyrir námskeiði í að búa til áfengi,“ segir Rebekka Kristjánsdóttir sem kveður aðra hreppsnefndarmenn í raun vera sammála þeim Sigurbirni. „Þau gerðu þetta án þess að hugsa samkvæmt því sem sveitarstjórinn sagði mér.“

Guðmundur segir einu umsagnirnar sem hann hafi fengið um víngerðarkynninguna hafa verið jákvæðar. „Það hefur enginn íbúi snúið sér til mín með óánægju með þetta nema þessi tvö,“ segir oddvitinn og slær á létta strengi. „Það eru örugglega allir farnir að laga vín heima og það verður fljótandi út úr öllum kjöllurum á ég von á.“

Rebekka segir ýmsa menningarlega viðburði einu sinni í mánuði eiga að gefa fólki tækifæri til að hittast. „Næst ætlar einn bóndinn að sýna hvernig á að hekla stjörnur. Þar á eftir ætlum við að fá höfunda til að lesa úr jólabókum. Og í janúar höfum við að hugsað okkur að vera með sushi-námskeið.“

Úr fréttabréfi Kjósarhrepps 30. október síðastliðinn:

„Starfsmenn Ámunnar kynna hve einfalt og ódýrt er að gera sjálfur sitt eigið gæðavín og hversu gott það getur verið. Farið er yfir það hvernig eigi að búa vínið til, hvernig áhöld þarf til þess og hvernig efni eru í boði ásamt skilgreiningu á þeim.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×