Lífið

Alveg einstakur persónuleiki

Bjartur, heimilisköttur Kattholts, kvaddi þetta líf á þriðjudag. Hann var titlaður móttökustjóri samtakanna og var mörgum vel kunnur.
fréttablaðið/valli
Bjartur, heimilisköttur Kattholts, kvaddi þetta líf á þriðjudag. Hann var titlaður móttökustjóri samtakanna og var mörgum vel kunnur. fréttablaðið/valli
„Hann var búinn að vera veikur, með tannsýkingu og sýkingu í beinum, og hættur að borða eins og dýr gera þegar þau gefast upp. Dýralæknar voru búnir að meðhöndla hann eins og hægt var og að lokum tókum við þá erfiðu ákvörðun um að láta svæfa hann," segir Halldóra Björk Ragnarsdóttir, rekstrarstjóri Kattholts, um heimilisköttinn Bjart sem kvaddi þennan heim á þriðjudag. Bjartur var mörgum vel kunnur, enda sinnti hann hlutverki móttökustjóra Kattholts.

Bjartur fagnaði fjórtán ára afmæli sínu í október síðastliðnum og náði því hárri elli.

Bjartur fannst á vergangi í Mosfellsbæ fyrir rúmum sjö árum síðan og var þá fluttur í Kattholt. Þar kom í ljós að hann var örmerktur, en þegar haft var samband við eiganda hans vildi sá ekkert með köttinn hafa. Úr varð að Bjartur settist að í Kattholti og tók við hlutverki heimiliskattar samtakanna. „Það er mikill sjónarsviptir að honum Bjarti og við söknum hans mikið. Hann var alveg einstakur persónuleiki, ljúfur og góður, og aldrei neitt vesen á honum. Hann var hvers manns hugljúfi," segir Halldóra.

Bjartur bjó á Kattholti í sjö ár og tók við hlutverki heimiliskattar samtakanna af Emil. Halldóra segir að tíminn muni leiða í ljós hvort nýr köttur finnist í þetta starf. „Það þarf alveg sérstakan kött í þetta starf, næsti heimilisköttur gæti þess vegna verið læða, þetta erfist ekki í karllegg."

Fréttablaðið flutti síðast frétt af Bjarti í október þegar hann var viðstaddur kynjakattasýningu í þeim erindagjörðum að safna fé til styrktar Kattholti sem hefur glímt við nokkra fjárhagsörðugleika. Fólk borgaði þá hundrað krónur fyrir að fá að klappa Bjarti og á tveimur dögum safnaði hann yfir hundrað þúsund krónum með þolinmæðinni einni saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.