Alveg einstakur persónuleiki 17. janúar 2013 06:00 Bjartur, heimilisköttur Kattholts, kvaddi þetta líf á þriðjudag. Hann var titlaður móttökustjóri samtakanna og var mörgum vel kunnur. fréttablaðið/valli „
Hann var búinn að vera veikur, með tannsýkingu og sýkingu í beinum, og hættur að borða eins og dýr gera þegar þau gefast upp. Dýralæknar voru búnir að meðhöndla hann eins og hægt var og að lokum tókum við þá erfiðu ákvörðun um að láta svæfa hann," segir Halldóra Björk Ragnarsdóttir, rekstrarstjóri Kattholts, um heimilisköttinn Bjart sem kvaddi þennan heim á þriðjudag. Bjartur var mörgum vel kunnur, enda sinnti hann hlutverki móttökustjóra Kattholts. Bjartur fagnaði fjórtán ára afmæli sínu í október síðastliðnum og náði því hárri elli. Bjartur fannst á vergangi í Mosfellsbæ fyrir rúmum sjö árum síðan og var þá fluttur í Kattholt. Þar kom í ljós að hann var örmerktur, en þegar haft var samband við eiganda hans vildi sá ekkert með köttinn hafa. Úr varð að Bjartur settist að í Kattholti og tók við hlutverki heimiliskattar samtakanna. „Það er mikill sjónarsviptir að honum Bjarti og við söknum hans mikið. Hann var alveg einstakur persónuleiki, ljúfur og góður, og aldrei neitt vesen á honum. Hann var hvers manns hugljúfi," segir Halldóra. Bjartur bjó á Kattholti í sjö ár og tók við hlutverki heimiliskattar samtakanna af Emil. Halldóra segir að tíminn muni leiða í ljós hvort nýr köttur finnist í þetta starf. „Það þarf alveg sérstakan kött í þetta starf, næsti heimilisköttur gæti þess vegna verið læða, þetta erfist ekki í karllegg." Fréttablaðið flutti síðast frétt af Bjarti í október þegar hann var viðstaddur kynjakattasýningu í þeim erindagjörðum að safna fé til styrktar Kattholti sem hefur glímt við nokkra fjárhagsörðugleika. Fólk borgaði þá hundrað krónur fyrir að fá að klappa Bjarti og á tveimur dögum safnaði hann yfir hundrað þúsund krónum með þolinmæðinni einni saman.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Fleiri fréttir Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Sjá meira