Sagði upp komin sjö mánuði á leið 1. febrúar 2013 10:15
Anna Kristín Magnúsdóttir er mikill fagurkeri og opnaði verslunina Kjólar & Konfekt á Laugavegi fyrir stuttu. Hún sjálf getur ekki lifað án kjóla né súkkulaðimola og býður viðskiptavinum upp á huggulegt andrúmsloft í hjarta Reykjavíkur.Segðu mér aðeins frá þínum bakgrunni í verslunar- og kjólabransanum? Ég var innkaupastjóri fyrir Debenhams á Íslandi í fimm ár og rekstarstjóri þar í um eitt ár. Ásdís Gunnarsdóttir sem ég fékk með mér í þetta er kjólaklæðskeri að mennt og var einnig stílisti í Debenhams. Hún er líka förðunarfræðingur hjá MAC. Við unnum semsagt saman í Debenhams og ég náði að draga hana með mér í þetta.Af hverju ákvaðstu að opna þessa verslun og hvenær opnaði hún? Mig langaði að gera eitthvað sjálf og fannst þessi fimm til sex ár hjá Debenhams bara orðin góð. Ég sagði upp starfi mínu, þá komin sjö mánuði á leið. Í fæðingarorlofinu teiknaði ég þetta upp og gerði áætlun sem ég fór með í bankann og karlinn í bankanum tók svona svakalega vel í þetta. Ég varð eiginlega bara hissa hvað hann tók vel í þetta. Ég vildi samt ekki fara útí þetta nema að hún Ásdís kæmi með mér í þetta. Hún var strax til.Afskaplega klæðilegur kjóll úr Unicorn línunni.Hvaðan kemur nafnið Kjólar & Konfekt? Nafnið kom til eina andvökunóttina þegar ég var að búa þetta "concept" til. Ég hef safnað kjólum frá því ég man eftir mér og er að safna líka kjólum fyrir dætur mínar. Ég er með mína eigin hefð að vera alltaf í kjólum á föstudögum. Eldri dóttir mín fær alltaf að fara í kjól í skólann á föstudögum líka. Svo er ég súkkulaðisjúk. Ég verð helst að fá mér einn til tvo mola á dag. En það verður að vera gott og vandað stöff. Það er tvennt sem getur alltaf látið manni líða kvenlegri en allt - fallegur kjóll og gómsætur súkkulaðimoli. Konfekt smakkast líka bara betur þegar maður er í kjól.Hvernig hafa viðtökurnar verið? Alveg hreint framar björtustu vonum. Viðskiptavinir okkar hafa verið duglegir að koma til okkar og hrósa okkur fyrir verðin og vöruúrvalið. Við leggjum mikið upp úr því að veita persónulega og góða þjónustu. Einnig erum við með opið á sunnudögum og konunum finnst frábært að koma, fá sér góðan kaffibolla og skoða í rólegheitum. Við höfum fengið vinkonuhóp sem segist ætla að koma reglulega í kaffi og kjólaskoðun til okkar á sunnudögum. Facebook gengur líka ótrúlega vel og við seljum mikið út á land í gegnum síðuna. Við munum svo opna heimasíðuna okkar, kjólar.is á næstu vikum.Svartur partíkjóll.Í versluninni eru vintage kjólar, nýir kjólar og kjólar sem eru saumaðir á staðnum, ekki satt? Hvernig myndirðu lýsa stíl verslunarinnar? Stíllinn á verslunninni kemur í raun úr öllum áttum. Þó svo að kannski áhrifin séu gömul, klassísk snið. En við verslum kjóla alls staðar að og reynum að eiga eitthvað fyrir alla.Er hægt að fá sérsaumaða kjóla hjá ykkur? Kosturinn við að hafa kjólaklæðskera á staðnum er að geta boðið konum upp á að stytta, þrengja, síkka eða víkka - við erum jú skapaðar í öllum stærðum og gerðum. Svo erum við með okkar eigin kjólalínu Unicorn sem hefur fengið rosa góðar viðtökur. Það er aldrei að vita hvað Ásdís tekur að sér gera ef maður biður hana fallega.Nú er verðið frekar lágt, er það sérstök stefna verslunarinnar? Já við viljum vera sanngjarnar í verði. Við erum með lægri álagningu á vörunum okkar en gengur og gerist. Við viljum frekar selja fleiri og setja færri á "útsölu". Við finnum að konurnar hafa verið mjög sáttar við það og eru jafnvel að kaupa tvo kjóla í staðinn af því þær eru svo þakklátar fyrir verðin.Anna og Ásdís í fallegu versluninni.Hvernig konur versla hjá ykkur? Það eru konur á öllum aldri, í öllum stærðum og gerðum. Við áttum ekki endilega von á því að ná til svona margra en það var samt draumurinn. Við seldum flottri fermingarstúlku fermingarkjól í gær og í síðustu viku seldum við 88 ára gamalli konu tvo kjóla. Svo hafið þið eitthvað verið að taka á móti hópum er það ekki? Jú, við tökum á móti hópum, allt að tuttugu manna. Saumaklúbbum, gæsahópum eða jafnvel vinnuhópum. Þá bjóðum við upp á súkkulaðifræðslu og kampavínssmakk, förðunarkennslu, kennum rétta notkun á aðhaldsfatnaði, miðilsfundi, hópefli og margt margt fleira. Fyrirspurnir má senda á kjolar@kjolar.is. Við hvetjum allar konur til að kíkja til okkar í kjólaskoðun og vera óhræddar við að nýta sér þjónustu okkar. Við búum að mikilli reynslu í þessum bransa og okkur finnst ekkert skemmtilegra en að aðstoða konur við að finna sér rétta kjólinn eða sniðið. Það er alltaf heitt á könnunni hjá okkur og alltaf hægt að smakka smá konfekt hjá okkur. Hér eru sófar, legubekkir og Fréttablaðið þannig eiginmennirnir geta haft það náðugt á meðan.Kjólar & Konfekt er staðsett á Laugavegi 92.Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.
Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Beint flug til Portó Lífið samstarf HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Fleiri fréttir Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Sjá meira