Ekkert hrædd við að verða ástfangin 31. janúar 2013 10:45
Dansparið Hanna Rún Óladóttir og Sigurður Þór Sigurðsson sem sló í gegn í þáttunum Dans, dans, dans á Rúv í lok síðasta árs hættu saman í byrjun árs. Lífið heyrði í Hönnu sem hefur nóg að gera í dansinum. Hún er komin yfir sambandsslitin og tilbúin að verða ástfangin á ný.Það vakti athygli þegar þú hættir með unnusta þínum og dansfélaga Sigurði Þór. "Já ég og Siggi við slitum trúlofuninni rétt fyrir jól eða réttara sagt hann."Ertu tilbúin að verða ástfangin á ný? "Ég ætla ekkert að loka á neitt. Það gerist bara þegar það gerist. Ég er alveg komin yfir allt og mér líður svo ótrúlega vel. Ég elska lífið og ég er ekkert hrædd við að verða eitthvað ástfangin svo já ég leyfi því bara að gerast þegar það gerist."Traust skiptir ölluHvaða kosti þarf maðurinn sem mun fanga hjarta þitt að bera? "Maðurinn sem mun fanga mitt hjarta þarf númer eitt, tvö og þrjú að geta verið hann sjálfur alltaf. Heiðarlegur og það þarf að vera hægt að treysta honum. Traust skiptir öllu. Hann þarf að hafa metnað fyrir því sem hann gerir og geta stutt mig í dansinum mínum. Það væri að sjálfsögðu ekki leiðinlegt ef hann væri fallegur (hlær). En útlitið er ekki það sem skiptir mestu máli. Það er bara bónus ofan á allt hitt ef hann hefur það sem ég taldi upp." "Þegar maður hefur þetta sem ég var að telja upp skín innri fegurðin svo mikið að það er ekki hægt annað en að vera fallegur. Mér þarf að líða vel í kringum hann og að sjálfsögðu þarf honum að líða vel í nærveru minni. Þannig að já bara ósköp venjulegur góður niðri-á-jörðinni-maður."Gengur vel með rússneska dansfélaganum"Við erum bara búin að keppa hérna heima. Þetta voru tvær keppnir. Íslandsmeistaramótið sem við unnum og svo annað mót þar sem voru erlendir keppendur og þar náðum við öðru sæti," svarar Hanna spurð hvernig henni gengur með rússneska dansaranum Nikita. "Við vorum rosalega ánægð. Það gekk ótrúlega vel miðað við að við vorum bara búin að æfa saman í eina og hálfa viku. Það gekk allt upp eins og við vorum að vonast til og bara betur ef eitthvað er."Evrópumeistarmót framundanHvað er framundan hjá þér og Nikita? "Ég er að kenna dans á fullu og hann að vísu líka en við erum á leiðinni til Kaupmannahafnar að taka einkatíma hjá erlendum kennara eftir eina og hálfa viku. Svo í febrúar er keppni í Kaupmannahöfn sem er rosalega stórt og sterkt mót. "Svo erum við að fara á Evrópumeistaramót sem haldið verður í Rússlandi. Hann er að fara í sjónvarpsþáttinn Dancing with the Stars núna í mars þannig að við verðum sennilega í Þýskalandi í einn og hálfan mánuð að æfa á fullu fyrir Evrópumeistaramótið. Það verður mikið um ferðalög þetta árið við erum að fara til mjög margra landa að keppa svo við munum búa svona semí í ferðatösku bara."Hanna starfar sem fyrirsæta samhliða dansinum.En hvað gerir þú burtséð frá dansinum? "Ég er að vinna í Gullsmiðju Óla sem er verslun foreldra minna. Ég er líka einstöku sinnum að vinna í Lolitu fatabúð og svo er ég módel líka. Ég elska að syngja, spila á píanó og mála. Allt sem tengist músík og einhverskonar list, föndri og saumaskap," segir þessi lífsglaða stúlka að lokum.Hanna með nýja dansfélaganum Nikita.
Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Sjá meira