Vilja að Kristján greiði hálfan milljarð - tveir færðu skuldir í einkahlutafélag á síðustu stundu 27. maí 2013 11:03 Kristján Arason.
Aðeins tveir starfsmenn Kaupþings fengu að færa eignir sínar og skuldir yfir í einkahlutafélag árið 2008, örfáum mánuðum fyrir hrun, en annar þeirra var Kristján Arason. Þetta er meðal þess sem kom fram í réttarhöldum í máli Kristjáns Í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Kristján fékk 1,7 milljarða lán frá Kaupþingi til að kaupa hlutabréf í bankanum misserin fyrir hrun, líkt og margir aðrir starfsmenn bankans. Kristján tók lánin í eigin nafni en færði hins vegar skuldina yfir í einkahlutafélagið 7 hægri ehf. í febrúar 2008. Það félag var tekið til gjaldþrotaskipta í desember 2010 og stóð skuldin við Kaupþing þá í rúmum tveimur milljörðum króna. Engar eignir fundust í búinu. Slitastjórn Kaupþings stefndi Kristjáni vegna málsins og vill rifta gjörningnum og krefst þess að hann greiði rúmlega 530 milljónir króna vegna lánasamninganna. Slitastjórnin gerir til vara skaðabótakröfu upp á 388 milljónir króna með dráttarvöxtum. Tapi hann málinu þarf hann að öllum líkindum að greiða rúmlega milljarð til baka séu dráttarvextir taldir með. Fram kom fyrir rétti í dag að svo virtist sem Hreiðar Már Sigurðsson, þáverandi forstjóri bankans, hafi einn gefið Kristjáni leyfi fyrir gjörningnum, sem var ekki sérstaklega samþykktur í stjórn bankans. Hreiðar bar vitni í málinu. Hann var meðal annars spurður hversvegna í ósköpunum hann hefði tekið þá ákvörðun að leyfa þennan gjörning, sem lögmaður slitastjórnar sagði að hefði augljóslega skaðað bankann, svaraði Hreiðar Már því til að tryggingarnar hefðu verið bréfin í Kaupþingi á þeim tíma - sem eins og allir vita - urðu verðlaus um hálfu ári síðar.
Mest lesið Stefna íslenska ríkinu vegna andláts tveggja ára dóttur Innlent Skipsbrak varpar ljósi á harmleik undan Vestfjörðum fyrir 72 árum Innlent Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Erlent Hendrik Hermannsson bráðkvaddur Innlent Niðurskurður skerðir þjónustu og ógnar öryggi Innlent Hitafundur í Laugarnesskóla vegna skólauppbyggingar Innlent Árás á tólf ára stúlku fór betur en á horfðist Innlent Björn Þorláks segir Katrínu ekki virða sig viðlits Innlent Aþena Sif dæmd fyrir stórfellda líkamsárás með Butterfly-hnífi Innlent Ráðherra sé að skapa ríkinu milljarðatjón með töfum Innlent Fleiri fréttir Niðurskurður skerðir þjónustu og ógnar öryggi Skipsbrak varpar ljósi á harmleik undan Vestfjörðum fyrir 72 árum Afhentu ráðherra 46 þúsund undirskriftir á eldislöxum Hitafundur í Laugarnesskóla vegna skólauppbyggingar Mættu ríðandi í skólann Stefna íslenska ríkinu vegna andláts tveggja ára dóttur Undir áhrifum og með eftirlíkingu af skotvopni Umtalsverðar breytingar á skipulagi Keflavíkurflugvallar Ráðherra sé að skapa ríkinu milljarðatjón með töfum Ákærður fyrir stunguárás á akbraut Árás á tólf ára stúlku fór betur en á horfðist Bjarni sagður lítillátur í samanburði við Keníuforseta Sleppt úr haldi lögreglu Draumórar að löggæsla muni ekki skerðast Segir fangaverði sinna starfi sínu af stakri trúmennsku Íslendingurinn á meðal þeirra sem slösuðust Sker úr um hvort sáðlát yfir andlit með valdi sé nauðgun Björn Þorláks segir Katrínu ekki virða sig viðlits Vilja upplýsingar frá Strætó vegna framkomu í garð barna Beint streymi: Kynferðisofbeldi og önnur áföll á Íslandi Kona sem sendi nektarmyndir í bræði fær grænt ljós Telja að Quang gæti spillt rannsókninni gangi hann laus Hendrik Hermannsson bráðkvaddur Fangi segir fangelsin „mislélegar kjötgeymslur“ AGS vill skattahækkanir og Norðmenn viðurkenna Palestínu Æsandi bíltúr norður í land Enn frestast utankjörfundaratkvæðagreiðslan Þjóðin klofin hvað varðar hvalveiðar Aþena Sif dæmd fyrir stórfellda líkamsárás með Butterfly-hnífi Yngstu börnin um 14 til 15 mánaða við innritun í haust Sjá meira