Þrjú prósent erlendra ferðamanna í flug Brjánn Jónasson skrifar 27. desember 2013 06:00 Innanlandsflug til Suð-Vesturhornsins hefur hingað til farið að nær öllu leyti um Reykjavíkurflugvöll. Fréttablaðið/Pjetur
Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja vinnur nú að úttekt á því hvort hagkvæmt sé að bjóða upp á innanlandsflug frá Keflavíkurflugvelli. Vinnu við úttektina á að ljúka í byrjun febrúar. „Við erum ekki að horfa til þess að Reykjavíkurflugvelli verði lokað, heldur hvort við getum boðið upp á breiðari vörulínu í innanlandsflugi,“ segir Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Heklunnar, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja. Hún bendir á að miðað við fyrstu upplýsingar sem félagið hafi aflað sér séu aðeins rétt um þrjú prósent farþega með innanlandsflugi erlendir ferðamenn. Þar séu því miklir möguleikar á að stækka kökuna. „Það kom fram tillaga frá sveitarstjórnarmönnum á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem haldinn var í október þess efnis að það væri kannað hvaða afleiðingar það hefði fyrir okkur ef Reykjavíkurflugvöllur myndi leggjast af,“ segir Berglind. Einnig verður skoðað hvort mögulegt sé að fá fleiri erlenda ferðamenn til að nýta sér innanlandsflug með því að fljúga frá Keflavíkurflugvelli. Það tengist ekki framtíð Reykjavíkurflugvallar, segir Berglind. Icelandair hefur boðið upp á flug milli Keflavíkur og Akureyrar yfir sumarið, en innanlandsflug hefur að öðru leyti ekki farið um Keflavíkurflugvöll. Berglind segir að mörgu að huga, enda ekki einfalt að bjóða upp á innanlandsflug frá alþjóðaflugvelli.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira