Þrjú þúsund manns í húsaleigulottói Eva Bjarnadóttir skrifar 23. nóvember 2013 07:00
Hluti leigjenda íbúðanna, sem Reykjavíkurborg hyggst reisa í samstarfi við Félagsbústaði, verður dreginn út í leigulottói. Samkvæmt tillögu Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir að leiguverð á íbúðum í blönduðum íbúðahúsum verði lægra en gerist á almennum markaði, sem muni leiða til þess að eftirspurn verður meiri en framboð. Verður það að hluta til leyst með þeim umsóknarpotti sem dregið verður úr. Verði tillaga borgarinnar að veruleika munu nýju íbúðirnar standa þrenns konar umsækjendum til boða. Fjórðungur leigjenda verða einstaklingar, sem eiga rétt á sérstökum húsaleigubótum samkvæmt viðmiðum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og munu áfram eiga sama rétt á félagslegu húsnæði. Sá hópur fer því ekki í umsóknarpottinn. Fjórðungur leigjenda verða einstaklingar sem eiga rétt á almennum húsaleigubótum. Þeir leigjendur verða þeir einu sem fara í umsóknarpott Félagsbústaða. Þeir munu gangast undir mat hjá velferðarsviði og þurfa að uppfylla þau fjárhagslegu skilyrði sem skilgreind eru hjá Velferðarráðuneytinu um tekju- og eignamörk vegna lánveitinga til leiguíbúða. Þau skilyrði eru mun víðari en miðað er við í úthlutun sérstakra húsaleigubóta. Í tillögunni segir að samkvæmt greiningu velferðarsviðs uppfylli yfir 90 prósent sem fá almennar húsaleigubætur skilyrðið, eða um 3.000 manns. Samþykktar umsóknir myndu fara í umsóknarpott Félagsbústaða og utanaðkomandi aðili fenginn til að sjá um útdráttinn. Hver umsókn færi í pott um íbúðir í samræmi við stærð og staðsetningu íbúðar sem sótt er um. Gert er ráð fyrir að hinn helmingur íbúðanna í hverju húsi verði leigður út til félagasamtaka. Útfærsla á leigusamningi við þann hluta leigjenda liggur ekki fyrir, en í tillögunni segir að æskilegast væri að leigusamningar giltu í fimm ár. Félagasamtökin myndu endurleigja íbúðirnar til sinna félagsmanna, en ekki væri gert ráð fyrir að þessi hópur uppfyllti að öðru leyti skilyrði Velferðarsviðs varðandi mat á eignum eða tekjum, eða hann fari í umsóknarpottinn.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Sjá meira