Listagenið sofnaði Þyrnirósarsvefni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 14. september 2013 14:00 Svava Bjarnadóttir"Ég var hvorki hvött né lött en hef alltaf málað og teiknað,“ segir hún. .Fréttablaðið/Vilhelm
Svava Bjarnadóttir ljósmyndari opnar sýninguna Hrópandi þögn í dag klukkan 14 í Gerðubergi í Breiðholti. Þar eru magnaðar myndir af ferðum hennar um landið og allar með skýra tengingu við íslenskt þjóðlíf. „Ég hef mikinn áhuga á fólki og reyni að hafa manneskju eða einhverja mjög sérstaka stemningu í hverri mynd,“ segir Svava Bjarnadóttir ljósmyndari sem opnar ljósmyndasýningu í Gerðubergi í dag undir yfirskriftinni Hrópandi þögn. Hvaðan kemur sá titill? „Myndirnar á sýningunni urðu margar til á ferðum mínum um landið sumarið 2012 með góðri vinkonu, Margréti Hallgrímsdóttur þjóðminjaverði. Hún var að vitja minja sem safnið á um allt land og þar fann ég mörg góð myndefni, bæði af húsakosti og fólki sem lifir fremur óhefðbundnu lífi. Þar eru líka eldri myndir frá Grímsstöðum á Fjöllum. Það eru töfrar við þann stað. Bara á einu kvöldi og einni morgunstund tók ég þar magnaðar myndir. Ein landslagsmynd þaðan er til dæmis algerlega í anda titils sýningarinnar. Grímsstaðir eru ekki lengur við þjóðveg 1 en staðurinn hrópar á mann, víðernið er svo mikið og svo er Dettifoss í bakgarðinum.“ Svava átti heima á Gufuskálum á Snæfellsnesi fyrstu ár ævi sinnar, var þar umvafin sterkri náttúru jökuls, hrauns og ólgandi úthafsöldu og því engin furða þótt fylgi henni kraftur. Hún starfaði sem fjármálastjóri fyrirtækja í mörg ár, síðast hjá Mannviti en hætti þar árið 2012 til að ljúka námi í ljósmyndun. Þurfti ekki hugrekki til? „Jú, en það var sköpunarþörf í mergnum sem fór hvergi,“ segir hún og kveðst hafa kynnst ljósmyndun ung gegnum kærastann sinn sem hún svo giftist. „Það var mjög rómantískt þegar við vorum í myrkraherberginu að vinna við framköllun og stækkun,“ rifjar hún upp. „Síðan hef ég alltaf verið veik fyrir svarthvítum myndum.“ Hún kveðst þó aldrei hafa hugsað um sig sem listakonu. „Ég var eins og Karitas sem Kristín Marja skrifaði um. Stemningin þegar ég var að alast upp var: Þú þarft bara að vinna, vinkona. Ég var hvorki hvött né lött en hef alltaf málað og teiknað, skorti fyrst og fremst sjálfstraust og það var svo skrítið að þegar ég fór í viðskiptafræðina sofnaði listagenið þyrnirósarsvefni.“ Þar kom þó að Svava keypti sér góða myndavél og var boðið í ljósmyndahóp sem heitir Imagio. Þar kveðst hún hafa fengið hvatningu og að lokum ákvað hún að ljúka námi í ljósmyndun frá New York Institute of Photography. Nú hefur hún líka lært markþjálfun, sem snýst um að ná til fólks og fá það til að virkja sína bestu kosti, og skiptir tíma sínum milli þess að starfa sem rekstrarráðgjafi, markþjálfi og ljósmyndari. „Ég vel mér sjálf verkefni í ljósmynduninni,“ segir hún, „og vil hafa það þannig til að halda frelsinu og gleðinni.“ Slóð inn á vef Svövu er www.svava.is
Menning Mest lesið Hulunni svipt af Taskmaster Bíó og sjónvarp Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Gagnrýni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Lífið Hvernig fer Óskarinn? Bíó og sjónvarp Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Menning „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Lífið Boy George keppir fyrir San Marínó Tónlist Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Bíó og sjónvarp Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Lífið samstarf Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Lífið Fleiri fréttir Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Andrew á Louvre Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið „Ný sýn, nýr heimur“ Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Alaska og Birnir sigursæl Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Sjá meira