Myglugró í píanóinu vegna rakaskemmds húsnæðis Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 13. september 2013 07:00 Kristjana Stefánsdóttir söngkona gat ekki selt rakaskemmt húsnæði sitt og tók bankinn þess vegna við því. Fréttablaðið/gva
Kristjana Stefánsdóttir söngkona þurfti að losa sig við píanóið sitt og allar nóturnar sínar. Hún skipti auk þess út latex-trúðsnefinu sem hún notaði í sýningunni Jesús litli fyrir silíkonnef. Þetta varð hún að gera vegna veikinda sem hún kveðst hafa hlotið af því að búa í rakaskemmdu húsnæði. „Ég gat varla haldið mér vakandi í upphafi æfinganna fyrir Jesús litla árið 2009. Mér fannst það mjög skrítið þar sem þetta var svo spennandi og skemmtilegt. Ég var einnig komin með útbrot, liðverki og stöðugan niðurgang auk þess sem ég var oft kvefuð,“ segir Kristjana. Hún getur þess að hún hafi haft samband við Hús & heilsu, fyrirtæki sem sérhæfir sig í raka- og mygluskoðunum. „Systir mín, sem bjó fyrir austan, hafði verið með svipuð einkenni sem reyndust vera vegna rakaskemmda. Hún hafði fengið aðstoð hjá þessu fyrirtæki.“ Við skoðun kom í ljós að skólprör höfðu gefið sig á þremur stöðum undir kjallaraíbúð Kristjönu sem hún hafði búið í í um fjögur ár. „Þarna voru eiginlega þrjár litlar sundlaugar og raki kominn undir húsplötuna sem var svört af myglu. Þetta var undir baðherberginu, eldhúsinu og ganginum,“ segir Kristjana. Hún flutti út í um átta vikur á meðan gert var við húsnæðið. „Það var hins vegar ekki farið eftir leiðbeiningum Húsa & heilsu við verkið og það reyndust vera myglugró úti um allt að endurbótunum loknum. Þess vegna varð ég að farga innbúinu mínu og yfirgefa íbúðina.“ Rúmt ár er síðan Kristjana flutti út og heilsa hennar hefur batnað smátt og smátt. „Ég hafði reyndar alltaf flúið úr íbúðinni til vina minna af og til og einkum þær vikur sem dóttir mín var hjá pabba sínum. Hún hafði einnig verið með verki og niðurgang en jafnaði sig inn á milli þegar hún var ekki hjá mér. Hún er búin að ná sér að mestu leyti og ég verð sífellt betri. Ég hef orðið að skipta alveg um lífsstíl því ég er komin með varanlegt glútenóþol og latex-ofnæmi sem ég er viss um að stafar af því að hafa búið í rakaskemmdu húsnæði.“ Kristjana kveðst ekki hafa getað selt íbúðina sína og bankinn þess vegna tekið við henni. Hún getur þess einnig að hún hafi ekki fengið bætur hjá tryggingafélaginu sínu þar sem rakinn var undir húsplötunni en ekki fyrir ofan. Þeir sem þrifu húsnæðið hafi heldur ekki viljað taka ábyrgð á neinu. „Mér fannst sárt að horfa á eftir píanóinu mínu og nótunum og öðrum hlutum en ég gat ekki haft þetta hjá mér. Þetta var fullt af myglugróum. Ég setti fimmtán kassa í geymslu og tek til mín einn og einn til að sjá hvað ég þoli. Fólk heldur að maður sé ekki í lagi andlega þar sem það sér engin merki um að eitthvað sé að.“ Í dag er haldið málþing sérfræðinga á Grand Hóteli í Reykjavík um raka og myglu í byggingum. Tilgangur málþingsins er að efla samvinnu og umræðu og hefja aðgerðir til að sporna við vandamálinu. Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segir að tengsl séu á milli rakaskemmda í húsnæði og heilsuvanda.
Mest lesið Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Innlent Fleiri fréttir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Sjá meira