Borgarbúum sem vilja leigja fjölgar 4. júní 2013 07:00 Hátt hlutfall leigjenda er í Úlfarsárdal, eða 21 prósent. Flestir borgarbúar vilja búa áfram í sama hverfi og þeir gera í dag, samkvæmt viðhorfskönnun. fréttablaðið/Pjetur
Um 14 prósent Reykvíkinga búa í leiguhúsnæði en um fjórðungur reiknar með að flytja í slíkt húsnæði á næstu fimm árum. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem unnin var fyrir samtökin Betri borgarbragur og Umhverfissvið Reykjavíkurborgar. Landráð sf. vann könnunina. Margt athyglisvert kemur fram í könnuninni en alls tók 1.421 borgarbúi þátt í henni. Borgarbúum hefur fjölgað um 3,2 prósent síðan könnunin var gerð síðast, en það var árið 2007. Hlutfallslega var fjölgunin mest í Grafarvogi, Árbæ og Grafarholti, en mest var fækkunin í Vesturbæ og Breiðholti. Um helmingur svarenda, eða 47 prósent, reiknaði með að skipta um húsnæði innan fimm ára og þar af 26 prósent innan tveggja ára. Hins vegar hugsar 41 prósent sér ekki til hreyfings. Þetta eru svipaðar tölur og árið 2007, þegar 49 prósent reiknuðu með að flytja innan fimm ára. Leigjendum fjölgar Könnunin sýnir að flestir Reykvíkingar vilja búa áfram í Reykjavík. Um 87 prósent ætla að leita að húsnæði innan borgarmarkanna og um 55 prósent innan síns hverfis. Flestir vilja því búa áfram í sama hverfi en það er þó misjafnt eftir borgarhlutum. Þannig vilja 84 prósent Vesturbæinga búa áfram í Vesturbænum, en það er hæsta hlutfallið, en aðeins rétt rúmlega helmingur Breiðhyltinga, eða 53 prósent, vill búa áfram í Breiðholtinu. Það er lægsta hlutfallið. Hlutfallslega óska flestir eftir því að búa í Miðborginni og öðrum eldri hverfum vestan Elliðaárósa, en úthverfin eins og Breiðholt og Grafarvogur virðast ekki mjög vinsæl, miðað við hlutfall íbúa. Hlutfall þeirra sem búa í eigin húsnæði hefur lækkað frá árinu 2007, eða úr 80 prósentum í 76. Að sama skapi hefur hlutfall leigjenda aukist um 2 prósent og nú eru um 14 prósent borgarbúa í leiguhúsnæði. Það hlutfall gæti aukist, því um fjórðungur reiknar með að leita að íbúð í einhvers konar leiguformi. Þar er bæði átt við almennt leiguhúsnæði og svo nemendaíbúðir, kaupréttaríbúðir, þjónustuíbúðir og félagslegt húsnæði. Langflestir, eða 74 prósent, vilja þó eiga eigið húsnæði.Minni íbúðir Leigjendur eru flestir í Miðborginni, eða 32 prósent. Næst koma Grafarholt – Úlfarsárdalur með 21 prósent og Vesturbær með 17 prósent. Reikna má með því að margir í Grafarholti og Úlfarsárdal hafi misst húsnæði sitt vegna efnahagsástandsins og því sé hlutfall leigjenda jafn hátt þar og raun ber vitni. Könnunin sýnir einnig að flestir reikna með að minnka við sig húsnæði. Meðalreykvíkingurinn vill búa í 120 fermetra, fjögurra herbergja íbúð. Hlutfallslega margir vilja þó flytja í tveggja til þriggja herbergja íbúðir. Draumurinn um einbýlishús lifir þó enn góðu lífi, en 47 prósent svarenda vilja búa í einbýlishúsi.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira