Innlent

Efnameira fólk hefur forgang í augnaðgerðir

María Lilja Þrastardóttir skrifar
Í febrúar í 2012 voru 710 einstaklingar á biðlista eftir aðgerð á augasteini, borið saman við þá rúmlega 1200 sem nú bíða. Er um sjötíu prósent fjölgun að ræða.
Í febrúar í 2012 voru 710 einstaklingar á biðlista eftir aðgerð á augasteini, borið saman við þá rúmlega 1200 sem nú bíða. Er um sjötíu prósent fjölgun að ræða.

Rúmlega tólfhundruð einstaklingar voru á biðlistum fyrir skurðaðgerð á augasteini í febrúar samkvæmt úttekt Landlæknisembættisins. Samkvæmt heimildum blaðsins fjölgar jafnt og þétt í hópi þeirra sem bíða. Um sjötíu prósenta fjölgun hefur orðið á biðlistum frá því á sama tíma í fyrra. Aðeins eru gefin leyfi fyrir ákveðnum fjölda niðurgreiddra aðgerða ár hvert. Tvö fyrirtæki eru í samningi við ríkið auk Landspítalans, Sjónlag og Lasersjón.

„Við sjáum fram á að klára okkar kvóta í júní. En vildum gjarnan þjónusta fleiri. Þetta eru mjög þakklátar aðgerðir og þörfin brýnni nú en áður,“ segir Eva María Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri hjá Lasersjón. Kostnaður við aðgerð af þessu tagi er um hundrað og fimmtíu þúsund krónur, fyrir hvort auga. Fólki stendur til boða að kaupa þjónustuna án aðkomu ríkisins. Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá Sjónlagi, segir að slíkt sé ekki þróun í rétta átt. „Það býður upp á misskiptingu sem við viljum ekki sjá innan heilbrigðiskerfisins. Meðalaldur þjóðarinnar hækkar og við verðum því að horfast í augu við nýjar leiðir til þess að viðhalda lífsgæðum fólks,“ segir Kristinn.

Hann bendir jafnframt á að með nýjum reglum Sjúkratrygginga, sem innleiddar voru síðasta sumar, leyfist fólki aðeins að skrá aðgerð á einu auga á biðlista. Breytingarnar hafi í för með sér verulega skert lífsgæði þeirra sem bíði aðgerðar á hinu auganu og dæmi eru um að allt að ár líði á milli aðgerða hjá sömu manneskjunni. „Fólk þarf meðal annars að fá ný gleraugu á meðan það bíður og slíkt hefur ákveðinn kostnað í för með sér. Fyrir utan álagið sem fylgir því að hafa bara um hálfa sjón,“ segir Kristinn.

Athygli vekur að fjöldi aðgerða á ári hefur dregist saman um þrjátíu og sex prósent frá árinu 2010. Samkvæmt skýrslu Landlæknisembættisins má rekja það til sameiningar St. Jósefsspítala og Landspítala. Á St. Jósefsspítala voru gerðar 673 skurðaðgerðir á augasteini árið 2010. Aðgerðum á Landspítala hefur hins vegar ekki fjölgað eftir sameiningu. „Við erum með sérhæft starfsfólki og fullkomna skurðstofu sem við notum einu sinni í viku. Það er ömurleg nýting,“ segir Kristinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×