Innlent

Heiða ráðin til þingflokksins

Stígur Helgason skrifar
Heiða Kristín er formaður og framkvæmdastjóri þingflokks Bjartrar framtíðar og líka framkvæmdastjóri Besta flokksins.
Heiða Kristín er formaður og framkvæmdastjóri þingflokks Bjartrar framtíðar og líka framkvæmdastjóri Besta flokksins. Fréttablaðið/gva

Þingflokkur Bjartrar framtíðar ákvað á mánudag að ráða Heiðu Kristínu Helgadóttur, annan tveggja formanna flokksins, sem framkvæmdastjóra þingflokksins. Þessi ákvörðun var svo staðfest á stjórnarfundi Bjartrar framtíðar daginn eftir.

Heiða Kristín skipaði annað sætið á lista Bjartrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður í nýafstöðnum þingkosningum en náði ekki kjöri. Hún segist áfram munu starfa sem annar tveggja formanna flokksins og taka virkan þátt í stefnumótunarvinnu. Hins vegar hafi hún ákveðið að taka þetta starf að sér til að geta unnið náið með þingflokknum þrátt fyrir að eiga ekki sæti á þingi. „Gott utanumhald skiptir máli og er vanmetið í pólitík,“ segir Heiða, sem segist hafa miklar skoðanir á því hvernig innra starf flokksins eigi að vera.

„Við erum búin að byggja upp net allt í kringum landið og viljum ekki glutra því niður.“ Heiða verður áfram framkvæmdastjóri Besta flokksins í borginni, að minnsta kosti fyrst um sinn, og gegnir því í raun þremur störfum í einu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×