Fékk Gunnar bróður í leik- og dansverkin Álfrún Pálsdóttir skrifar 4. apríl 2013 10:15
María Dögg Nelson er ein af leikurum Stúdentaleikhússins sem frumsýnir í kvöld verkið Auka í Norðurpólnum. Hún kveðst ekkert kvíðin út af frumsýningunni. Um spunaverk er að ræða þar sem leiklistarformið í heild sinni er krufið. „Ég verð sjaldan stressuð en er komin með smá frumsýningarfiðring. Svo er röddin aðeins að bresta en það er líklega tákn um undirliggjandi stress," segir María Dögg Nelson, sem frumsýnir verkið Auka með Stúdentaleikhúsinu í Norðurpólnum í kvöld. Verkið er sagt gamansamt og kraftmikið spunaverk sem hópurinn allur á heiðurinn af ásamt leikstjóranum Bjartmari Þórðarsyni. Markmiðið í verkinu er að svara því af hverju leiklistin er heillandi og reyna þau að ögra áhorfandanum að eigin sögn. „Þetta er svona sketsasýning þar sem við veltum fyrir okkur hvað er leiklist og hvað gerir hana svona heillandi fyrir áhorfandann. Af hverju finnst okkur spennandi að horfa á hluti sem við viljum ekki upplifa í raunveruleikanum, eins og morð, pyntingar og ást í meinum sem okkur þyrstir svo í að sjá á sviði?" segir María Dögg. Ásamt henni skipa þau Andrés Pétur Þorvaldsson, Ari Freyr Ísfeld Óskarsson, Gunnar Smári Jóhannesson, Ingvar Örn Arngeirsson, Iona Huntingdon Williams, Laufey Haraldsdóttir og Þuríður Davíðsdóttir leikhóp Stúdentaleikhússins í ár. Æfingarferlið hefur staðið yfir síðan í febrúar og fór María Dögg í prufur hjá Stúdentaleikhúsinu samhliða prufum í leiklistarnám Listaháskóla Íslands sem fóru fram á sama tíma. „Maður lærir mikið á því að fara í prufur en svo skemmtilega vildi til að ég komst inn í bæði og er í skýjunum með það," segir María Dögg, sem er ein af tíu manns sem hefja nám við leiklistardeild LHÍ í haust. María Dögg er systir bardagakappans Gunnars Nelson og segir það fljótt hafa orðið ljóst hvað þau systkinin myndu taka sér fyrir hendur. „Þegar við vorum lítil var ég alltaf að plata Gunna með mér í að búa til leik- og dansverk og sýna fyrir fjölskylduna í boðum. Í staðinn fór ég með honum í gamnislag í sérstöku púðaherbergi sem við vorum með heima hjá okkur." Sem fyrr segir er verkið Auka frumsýnt í kvöld í Norðurpólnum en því leikhúsi verður lokað í byrjun sumars og sýningin því sú síðasta sem þar fer fram. Miðaverð er 2.000 krónur og 1.500 krónur fyrir nema. Hægt er að nálgast miða á studentaleikhusid@gmail.com og í síma 868-9721.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira