Er meðlimur í hlaupagengi frá Lundúnum Sara McMahon skrifar 6. febrúar 2013 21:00 "
Ég bjó í London í sjö ár og lærði textílhönnun við Central Saint Martins-skólann. Ég átti engan pening fyrir leikfimi og byrjaði því að hlaupa ein um garðinn í hverfinu mínu. Þáverandi kærasti minn fékk vinnu í byggingu sem kallast 1948, en þar safnast hópurinn saman fyrir hlaup, og hann sagði mér frá hópnum. Fyrst var ég feimin við að mæta en lét svo verða af því og hef ekki hætt að hlaupa síðan. Í gegnum hópinn hef ég líka kynnst mörgum af mínum bestu vinum,“ útskýrir Petra Bender textílhönnuður, sem er meðlimur í skokkgenginu Run Dem Crew. Gengið er styrkt af Nike-íþróttamerkinu og var stofnsett í Lundúnum árið 2008 af plötusnúðnum, kennaranum og ljóðskáldinu Charlie Dark en sjá má viðtal við hann og fleiri úr genginu hér fyrir ofan. Hópurinn er byggður á bandarískri fyrirmynd og má finna sams konar hópa í Berlín, Kaupmannahöfn, Amsterdam og New York. Petra lýsir skokkgenginu sem samfélagi fólks úr öllum kimum samfélagsins sem hittist vikulega og hleypur saman. Kjörorð hópsins eru "It's not a running crew, it's a family" sem þýðist á íslensku "Þetta er ekki hlaupahópur, þetta er fjölskylda“. Meðlimir Run Dem Crew eru í dag um 150 talsins en þegar Petra gekk til liðs við hópinn taldi hann um sextíu meðlimi. Petra kveðst fá meira úr því að hlaupa í slagtogi við aðra en þegar hún hljóp ein síns liðs. "Eftir að ég gekk til liðs við hópinn fór ég að hlaupa lengra en ég hélt ég gæti og nú hef ég hlaupið um sex hálfmaraþon,“ segir hún og bætir við að hún stefni á sitt fyrsta heilmaraþon í nánustu framtíð. Petra flutti nýverið aftur til Íslands og hefur nú sett á laggirnar hlaupahóp sem fékk til bráðabirgða nafnið Hipster-hlaupahópur. "Við ætlum að hittast við Hallgrímskirkju vikulega og hlaupa um miðborg Reykjavíkur. Við endum svo hlaupið á barnum. Fólk þarf ekki að vera hipster til að taka þátt, einu skilyrðin er að hafa gaman af því að vera með öðru fólki og gera eitthvað nýtt,“ segir Petra að lokum.
Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Beint flug til Portó Lífið samstarf HAM boða endalok alls Tónlist Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Sjá meira