Lífið

Jim Carrey sem bankaræningi

leikur ræningja
Jim Carrey leikur bankaræningja í nýrri mynd.
nordicphotos/getty
leikur ræningja Jim Carrey leikur bankaræningja í nýrri mynd. nordicphotos/getty
Jim Carrey er sagður ætla að leika í myndinni Loomis Fargo sem er sannsöguleg og fjallar um bankastarfsmann sem ákveður að ræna vinnuveitanda sinn.

Leikstjóri er Jared Hess sem er þekktur fyrir gamanmyndina Napoleon Dynamite. Tökur eiga að hefjast í apríl. Tvær aðrar myndir eru væntanlegar frá Carrey á næstunni.

Önnur er töframannagrínmyndin The Incredible Burt Wonderstone þar sem hann leikur á móti Steve Carell og hin er hasarmyndin Kick-Ass 2. Hann leikur einnig í Dumb and Dumber To sem er væntanleg á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.