Innlent

Hugsað til bráðabirgða

Gekk vel Bæjarstjórinn segir samstarfið hafa gengið vel en verið hugsað til bráðabirgða.
Gekk vel Bæjarstjórinn segir samstarfið hafa gengið vel en verið hugsað til bráðabirgða.
Snæfellsbær sagði nýverið upp þjónustusamningi frá 2011 við Grundarfjarðarbæ um verkefni skipulags- og byggingafulltrúa, vegna anna fulltrúans heima fyrir. „Þetta er ekkert sem kemur á óvart.

Þetta fyrirkomulag var hugsað til bráðabirgða og hefur í raun gengið lengur en við þorðum að vona og gengið mjög vel,“ sagði Björn Steinar Pálmason, bæjarstjóri Grundarfjarðar, í samtali við Skessuhorn. Hjá sveitarfélaginu er verið að vinna að lausn í málinu. - fb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×