Brasilísk kjötkveðjuhátíð í beinni á Íslandi Tinna Rós Steinsdóttir skrifar 31. janúar 2013 06:00 Rejane og vinkonur hennar eru þegar byrjaðar að koma sér í gírinn fyrir kjötkveðjuhátíðina. Hér eru þær Luciene Rodrigues Ferreira, Rasangela Santanada Silva, Rejane og Adda Nari Silva. Fréttablaðið/Anton „
Það eru margir Brasilíumenn á Íslandi svo okkur fannst vera kominn tími til að stofna samfélag okkar á milli og kynna landið okkar og menningu fyrir þeim sem hafa áhuga á," segir Rejane Santana DaSilva, formaður Brasilíufélagsins á Íslandi. Félagið var stofnað nú í október og er öllum velkomið að ganga í það. Félagið heldur sinn fyrsta viðburð, kjötkveðjuhátíð, á Klassik Rokk Bar, Ármúla 5, þann 9. febrúar næstkomandi. „Þann dag fer hátíðin af stað úti og við verðum með beina útsendingu frá hátíðahöldunum á þremur stórum tjöldum. Þar að auki verðum við með söngatriði, dansatriði og alls kyns skemmtun. Brasilíumenn eru þekktir fyrir að kunna að skemmta sér og öðrum og við ætlum svo sannarlega að standa undir nafni," segir Rejane. Á hátíðinni verður boðið upp á brasilískan mat og kökur en aðgangseyrir er þó aðeins 2.000 krónur og allt innifalið. „Við mælum með að fólk mæti í litríkum og skemmtilegum klæðnaði, til dæmis ætlar íslenskur vinur minn að fara í dragg. Ég vil ekki að hann verði einmana og vona því að fleiri draggdrottingar láti sjái sig," segir Rejane, en hún hefur búið á Íslandi í ein sex ár og er gift íslenskum manni, Stefáni Þorgrímssyni, sem kom einnig að stofnun félagsins. Saman eiga þau tvo syni, þriggja og sex ára. Nánari upplýsingar eru á Facebook-síðu félagsins
Mest lesið Heitustu trendin í haust Lífið Ástin kviknaði á Kaffibarnum Lífið Staðfesta þátttöku í Eurovision með fyrirvara um þátttöku Ísraela Lífið Rokkar pils sem bol og snýr flíkum öfugt Tíska og hönnun „Ég elskaði þig í fyrra lífi, ég elska þig í þessu lífi og mun finna þig í næsta“ Lífið Óvíst hvort Ísland verði með í Eurovision Lífið Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Tónlist Segist ekki dauður heldur „sprelllifandi“ Lífið Sonur Hersis og Rósu kominn með nafn Lífið Skringilega stór kaffibolli: „Ég verð aldrei aftur hreinn“ Lífið Fleiri fréttir Dóttir Arons Kristins og Láru komin með nafn Segist ekki dauður heldur „sprelllifandi“ Sonur Hersis og Rósu kominn með nafn Ástin kviknaði á Kaffibarnum Staðfesta þátttöku í Eurovision með fyrirvara um þátttöku Ísraela Heitustu trendin í haust „Ég elskaði þig í fyrra lífi, ég elska þig í þessu lífi og mun finna þig í næsta“ Sjarmerandi Vesturbæjarperla með sjávarútsýni Óvíst hvort Ísland verði með í Eurovision Guðrún Sørtveit og Steinar „loksins“ trúlofuð Skringilega stór kaffibolli: „Ég verð aldrei aftur hreinn“ Brúðarbíllinn gömul dráttarvél frá langafa Stjörnulífið: „Skemmtilegasta kvöld lífs míns“ Rick Davies í Supertramp er látinn Gleði og samvera í 60 plús leikfimi á Selfossi Kynlífsstellingar sem kveikja í kofanum Virkilega sláandi lífsreynsla að koma til Grindavíkur Bein útsending: Haustbingó Blökastsins Slóvenar draga sig úr Eurovision ef Ísraelar verða með Myndaveisla: Líf og fjör á Ljósanótt Vill brúa bilið milli almennings og réttarkerfisins Krakkatían: Eurovision, skíðasvæði og portúgalska Pamela slær á sögusagnirnar Gullkistan opnuð á Vestfjörðum Nýupptekið grænmeti á Flúðum í dag og opnar garðyrkjustöðvar Haustbingó í beinni á sunnudag Fréttatía vikunnar: Friðlýsing, frumsýning og handtaka Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Hleypur 110 kílómetra á dag til að setja heimsmet Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Sjá meira