Hefndir, flækjur og sætir fiskar 31. janúar 2013 08:00 Í myndinni Parker vill titilpersónan ná fram hefndum á fyrrum félaga sína og fær hina fögru Leslie sér til aðstoðar.
Jennifer Lopez kemur aftur á hvíta tjaldið um helgina þegar hún leikur aðalhlutverkið á móti töffaranum Jason Statham í hasarmyndinni Parker. Statham leikur atvinnuþjófinn Parker. Eftir að hafa náð að framkvæma hið fullkomna rán var Parker skilinn eftir af félögum sínum til að deyja. Hann lifði það þó af og nú kemst ekkert að í huga hans annað en að ná fram hefndum á fyrrum félögum sínum sem eru leiddir áfram af manni að nafni Melander. Til að hafa hefndina sem áhrifaríkasta stofnar Parker til kynna við hina fögru Leslie, sem þekkir Melander betur en flestir aðrir. Teiknimyndin Hákarlabeita 2 verður frumsýnd á föstudag. Hugrakki skrautfiskurinn Sær er þar í aðalhlutverki, eins og í fyrri myndinni sem er frá árinu 2006. Hinn illi Týr snýr hér aftur og hefur safnað saman her hákarla sem ætla að hefna fyrir tap hans í síðustu mynd. Háfurinn Rúni bætist í lið Sæs litla og virðist í fyrstu vera góður liðsauki. Það sem Sær og vinir hans vita þó ekki er að Rúni er í raun njósnari á vegum Týs. Nýjasta mynd Leos Carax, Holy Motors, verður frumsýnd í Bíói Paradís um helgina. Denis Lavant fer með aðalhlutverkið og honum til aðstoðar eru meðal annarra þokkagyðjurnar Eva Mendez og Kylie Minogue. Myndin vakti mikil viðbrögð á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra þar sem hún var afar umdeild. Hún fjallar um Óskar, sem flakkar á milli lífa og er til skiptis viðskiptajöfur, leigumorðingi, betlari, skrímsli og fjölskyldumaður.
Mest lesið Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Lífið Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Lífið Eltir draumana og þarf að færa fórnir Tónlist Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Lífið Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti Lífið Vinsælasta TikTok-stjarna heims handtekin og yfirgefur Bandaríkin Lífið Dularfull glæpasaga fær bókafólk til að klóra sér í kolli Menning Brian Wilson látinn Tónlist Ungfrú Ísland og Hringir Orfeusar og annað slúður með flest verðlaun á Grímunni Menning Gríman og glens í Borgarleikhúsinu Lífið Fleiri fréttir Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Gríman og glens í Borgarleikhúsinu Vinsælasta TikTok-stjarna heims handtekin og yfirgefur Bandaríkin Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu Skvísaðu þig upp fyrir íslenska sumarið Villi á Benzanum slapp með skrekkinn Átta ára meðgöngu loksins að ljúka Forsetabörnin loksins komin heim Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Stjörnulífið: Sjóðheit og löng helgi Sly Stone er látinn Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Máli Baldoni vísað frá Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Nefndirnar sem smíða orðin: Lýðnetið víkur fyrir internetinu og þjarki fyrir bóta Að eiturefnum sé dreift úr flugvélum yfir fólk „Strákar verða að sýna tilfinningar“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum „Grínast oft með að ég gaf honum um ellefu ár til að hætta við“ Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? „Ertu kannski Íslendingur?“ Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Söfnuðu milljón krónum fyrir ungt fólk með krabbamein Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Sjá meira