Latabæ ruglað saman við ofbeldisþáttaröð? Álfrún Pálsdóttir skrifar 31. janúar 2013 08:30 Spartacus og Sportacus. Á meðan það grófasta sem íþróttaálfurinn hefur gert er að henda epli í hausinn á Glanna Glæp er mun meira um ofbeldi og blóðsúthellingar í sjónvarpsþáttunum Spartacus sem þykja alls ekki við hæfi barna. „
Þetta er ansi góð grein hjá blaðamanni The New York Times," segir Magnús Scheving er hann er inntur eftir viðbrögðum sínum við grein blaðamannsins Neil Genzlinger í The New York Times. Blaðamanninum er umhugað um velferð barnanna, sem hann segir í sakleysi sínu ætla að horfa á Íþróttaálfinn breiða út heilsuboðskap sinn en sjá í þess stað hinn ofbeldishneigða Spartacus drepa mann og annan. Íþróttaálfurinn bera nafnið Sportacus vestanhafs og því ekki nema einn bókstafur sem skilur að sögurhetjurnar, sem gæti valdið ruglingi. Mikill munur er á efnistökum þáttanna en Spartacus er lýst sem óvenju ofbeldisfullu sjónvarpsefni með bæði blóðsúthellingum og nekt. „Í stað þess að læra um uppbyggingu beina af íþróttaálfinum læra börnin hvernig á að brjóta bein af Spartacus," segir í greininnni. Blaðamaðurinn skrifar einnig eins konar leiðarvísi, á gamansaman hátt, fyrir foreldra varðandi það hvernig þekkja skuli þessa tvo sjónvarpsþætti í sundur. Magnús Scheving segir þetta ekki í fyrsta sinn sem minnst sé á Sportacus og Spartacus í sömu andrá. Þegar myndin sem sjónvarpsþættirnir ofbeldishneigðu eru byggðir á kom út fyrir nokkrum árum var Magnús spurður að því hvort Latibær væri að gera bíómynd. „Þetta er mjög skemmtileg grein og hún súmmerar upp þann boðskap sem við höfum verið að reyna að ná með sjónvarpsþáttunum. Þrátt fyrir að vera laus við allt ofbeldi í Latabæ hefur okkur tekist að gera þættina spennandi fyrir áhorfandann. Hver man ekki eftir Tomma og Jenna sem gengu út á ofbeldi milli kattar og músar í vinsælu barnaefni? Það er ekkert sérstaklega gaman að tala um að borða grænmeti eða bursta tennurnar, en eins og stóð einhvers staðar þá tekst okkur með Latabæ að „make boring things into a game"," segir Magnús ánægður með greinina. „Nú er tekin við ný kynslóð sem þekkir Sportacus betur en Spartacus. Mig minnir að það sé í Bretlandi sem fleiri niðurstöður fást við leitarorðið Sportacus á Google en Spartacus. Það er ánægjulegt."
Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira