Lífið

Trúlofun í uppsiglingu?

Katy Perry og John Mayer er nú búin að vera saman í hálft ár. nordicphotos/getty
Katy Perry og John Mayer er nú búin að vera saman í hálft ár. nordicphotos/getty nordicphotos/getty
Stjörnuparið John Mayer og Katy Perry hefur verið að hittast opinberlega síðan í júlí í fyrra og nú eru slúðurmiðlar vestanhafs farnir að spá parinu trúlofun. Mayer eyddi jólunum með fjölskyldu Perry og samkvæmt heimildum slúðurblaðsins Star á söngvarinn að hafa dregið föður hennar til hliðar og beðið um hönd Perry. Blaðið segir að Mayer sé að leita að hinum fullkomna trúlofunarhring þessa dagana.

Bæði hafa Perry og Mayer gengið í gegnum ýmislegt í ástarlífinu. Hann hefur meðal annars verið í sambandi við Jennifer Aniston og hún skildi við sprelligosann Russell Brand í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.