Flakkaði á milli heimsálfa í leit að rétta dansherranum 26. janúar 2013 07:00 smellpassa saman Telma Rut Sigurðardóttir og Javier Fernandez ætla að spæna upp dansgólfið í laugardalshöll um helgina en þau hafa dansað saman síðan í ágúst. Fréttablaðið/valli „
Ég held að ég hafi aldrei passað svona vel saman við neinn dansherra áður,“ segir dansarinn Telma Rut Sigurðardóttir sem ætlar að freista gæfunnar á alþjóðlegu dansíþróttamóti í Laugardalshöll um helgina ásamt dansherra sínum, Javier Fernandez. Það verður líf og fjör í Laugardalshöll um helgina þar sem bæði Íslandsmeistaramót í dansi og alþjóðlega keppnin WDSF RIG 2013 fara fram. 530 keppendur eða 265 pör eru skráð til leiks og því mikið um dýrðir. Fjórar íslenskar stúlkur dansa við erlenda dansherra í fullorðinsflokki í ár en greinileg vöntun er á íslenskum strákum í þessum flokki. Telma Rut þekkir það af eigin raun þar sem hún þurfti 16 ára gömul að leita út fyrir landsteinana að dansherra. Hún prufaði sænskan, nýsjálenskan og franskan dansherra áður en hún loks kynntist hinum spænska Javier. „Margir íslenskir strákar hætta að dansa þegar þeir eru á milli 16 og 17 ára gamlir. Ég held að það þyki einfaldlega ekki nógu svalt að vera strákur í dansi á þeim aldri og að það sé aðalástæðan fyrir að fáir íslenskir strákar skila sér upp í atvinnudansaraflokkinn, því miður,“ segir Telma Rut sem bætir við að það sé ákveðið hark og álag að vera dansari og það krefjist bæði mikils áhuga og aga. Telma Rut og Javier hafa nú dansað saman síðan í ágúst í fyrra. Þau tóku þátt í sjónvarpsþættinum Dans dans dans og smellpassa saman að sögn Telmu. Oft halda margir að danspör séu í ástarsambandi en svo er ekki raunin með Telmu og Javier. „Við erum eins og systkini en mér finnst að maður ætti að halda þessu tvennu aðskildu. Hann elskar Ísland og vinnur við að kenna í Dansskóla Reykjavíkur. Svo býr hann heima hjá mér og er orðinn partur af fjölskyldunni,“ segir Telma Rut og fullyrðir að parið sé spennt að láta ljós sitt skína um helgina. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Sjá meira