Segir allt meira kósí á nýjum 800 Bar 17. janúar 2013 12:00 Eiður Birgisson og Sverrir Rúnarsson á hinum nýja 800 Bar sem verður opnaður á Selfossi í vor. Sá gamli brann til kaldra kola fyrir tæpu ári.
800 Bar á Selfossi verður opnaður á nýjan leik á Selfossi í vor við Austurveg 52 hjá gömlu slökkvistöðinni. "Þetta er við aðalgötuna. Það er traffík þarna framhjá og þetta er mjög góður staður," segir Eiður Birgisson, sem á nýja staðinn ásamt Sverri Rúnarssyni. Tæpt ár er liðið síðan 800 Bar brann til kaldra kola við Eyraveg eftir að eldur kom upp í röraverksmiðju en breiddist svo út í skemmtistaðinn. Þá var Eiður einnig annar eigendanna. 800 Bar naut mikilla vinsælda og voru þar haldnir bæði tónleikar og ýmis skemmtikvöld, þar á meðal Dirty Night. "Það var allt reynt þar og allt prufað. En það verða ekki sömu lætin hérna," segir hann. "Þetta er töluvert minni staður en sá gamli. Hann mun heita það sama en það verða nýjar áherslur og allt meira kósí." Spurður nánar út í hvernig dagskrá verður í boði segir Eiður það eiga eftir að koma í ljós. "Maður gerir sér ekki grein fyrir því hvað stærðin býður upp á. Við ætlum að byrja rólega. Það verður einhver lifandi tónlist og svo sjáum við bara til." Eiður segist vera búinn að jafna sig á áfallinu sem hann varð fyrir við brunann í fyrra. "Það var hræðilegur dagur en ég er löngu búinn að jafna mig á því. Það þýðir ekki að grenja í eitt ár heldur verður maður að snúa sér að því næsta." 800 Bar var upphaflega stofnaður í maí 2008, eins og kemur fram hér í þessarri grein á Vísi, og lifði því aðeins í fjögur ár þangað til hann brann. "Stefnan er að þessi staður lifi um ókomin ár." -fb Tengdar greinar:Eldurinn breiðist út - 800 bar logar líka800 bar brunninn til kaldra kolaAlgjör eyðilegging á SelfossiSlökkviliðsstjóri Selfoss: Við höfðum gríðarlegar áhyggjurTýnda kynslóðin - 800 bar mun rísa á ný
Mest lesið Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Muniz skilinn Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Fleiri fréttir Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sjá meira