Segir fyrirsögn um kynferðislega áreitni innan FSA villandi VG skrifar 6. júní 2013 12:36 Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Mynd/GVA „
Það er verið að gera úlfalda úr mýflugu þarna,“ segir Bjarni Jónasson, settur forstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA), en Akureyri Vikublað greindi frá því á vefsíðu sinni í dag að pistill framkvæmdastjórnar, og birtist á innri vef sjúkrahússins, hefði ollið töluverðum titringi á meðal starfsmanna. Í pistlinum sagði meðal annars: „Vellíðan í starfi er auðvelt að rífa niður með óheflaðri framkomu. Undanfarið hafa sumir starfsmenn orðið fyrir bremsulítilli gagnrýni annarra starfsmanna sjúkrahússins og í mörgum tilvikum er verið að hengja bakara fyrir smið. Gagnrýni er leyfileg, eftir umhugsun og eftir réttum boðleiðum. Gagnrýni ber að leggja fram á þann hátt að báðir aðilar geti unnið áfram með uppbyggilegum hætti að lausnum. Óhefluð framkoma verður ekki liðin. Baktal, einelti og kynferðisáreitni ekki heldur.“ Aðspurður hvort yfirstjórninni hafi borist kvartanir vegna eineltis eða kynferðislegrar áreitni á vinnustaðnum svarar Bjarni að svo hafi ekki verið. Hann útskýrir að pistillinn eigi í raun að undirstrika mannauðsstefnu sjúkrahússins um vinnuumhverfi, þar sem einelti, kynferðisleg áreitni eða önnur sú framkoma sem skapar öðrum vanlíðan eða óöryggi verður ekki liðin. „En sumir kjósa að leggja út frá pistlinum með þessum hætti,“ segir Bjarni og segir fréttina í Akureyri Vikublaði „ruglfrétt“ og fyrirsögn fréttarinnar villandi en þar sagði að kynferðislegt áreiti væri innan FSA. Meðal þess sem fram kemur í frétt Akureyri Vikublaðs er sú ásökun að starfsfólk finni fyrir mikilli óvissu um það hver sé yfirmaður yfirmannanna. Meðal annars er vitnað í mælingu á starfsanda innan FSA sem birtist í úttekt Ríkisendurskoðunar á sjúkrahúsinu árið 2011. Þar kom fram að bæði í viðhorfskönnun Ríkisendurskoðunar og í viðtölum við starfsmenn hafi komið fram að starfsmenn telji að forstjóri og framkvæmdastjórn sjúkrahússins væru í of litlum tengslum við klíníska starfsemi sjúkrahússins og starfsmenn þess. Spurður um þetta segir Bjarni að nú sé framkvæmdastjórnin allt önnur en þá og búið sé að taka á þeim þáttum sem þar voru gagnrýndir, meðal annars með nýju stjórnskipulagi og starfslýsingum.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira