"Óumdeilt að SÁÁ hefur bætt þjóðfélagið“ Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 10. október 2013 18:46
Fullur vilji er að hálfu velferðarráðuneytisins að taka þjónustusamning ríkisins og SÁÁ til endurskoðunar. Heilbrigðisráðherra segir SÁÁ hafa bætt samfélagið allt en samtökin blása nú til stórsóknar með nýbyggingu við Vog og leita til almennings eftir stuðningi. Áfram Vogur, afmælis- og baráttufundur SÁÁ verður haldinn í Háskólabíói í kvöld klukkan átta. Samtökin fagna nú þrjátíu og sex ára afmæli en sjúkrahúsið að Vogi er þrjátíu ára. Því verður blásið til mikillar veislu í kvöld þar sem John Grant, Hljómar og fleiri stíga á stokk. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana en hátíðarhöldin eru liður í símasöfnun SÁÁ til styrktar sjúkrahúsinu Vogi. Á Vogi er verið að reisa nýja álmu og hlýtur það að teljast nokkuð ánægjulegt í ljósi niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu síðustu misseri. „Sjúklingahópurinn er að breytast. Eldra fólk kemur nú inn á vog og veikara, þetta eru langt leiddir sjúklingar, eiturlyfjafíklar og aðrir. Þetta fólk þarf betri þjónustu. Það gefur auga leið að þegar við byggjum við sjúkrahúsið að þá þurfum við hjálp þjóðarinnar. Við höfum góðvilja fólks og fyrirtækja og því leggjum við af stað með símasöfnun, segir Rúnar Freyr Gíslason, samskiptafulltrúi SÁÁ.“ Sjúkrarekstur SÁÁ er fjármagnaður með þjónustusamningi við íslenska ríkið. Sjúkratryggingar kaupa sautján hundruð innlagnir hjá SÁÁ en samtökin sinna árlega tvö þúsund og þrjú hundruð innlögnum. Þannig reiða samtökin sig að miklu leyti á sjálfsaflarfé og því getur almenningur nú styrkt starf SÁÁ símleiðis. „Það er óumdeilt að starfsemi samtakanna hefur bætt líf marga, einstaklinga og fjölskyldna þeirra og þjóðfélagsins alls. Við erum með samning ríkisvaldið við SÁÁ sem við höfum lofað að taka til endurskoðunar. Ég vænti þess að þær viðræður fari fram í vetur. Ég er allur að vilja gerður til þess að endurskoða þennan samning, hvernig sú endurskoðun verður er allt of snemmt að segja til um.“ Hægt er að styrkja SÁÁ hér:903-1001 – 1000 kr.903-1003 – 3000 kr.903-1005 – 5000 kr.
Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent „Arc de Trump“ rísi í Washington Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Fleiri fréttir Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Mikilvægt að tala saman, líka karlar Sjá meira