Innlent

Hlerunum beitt í vændismálum

Jón Júlíus Karlsson skrifar
80 mál er í rannsókn vegna vændiskaupa hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Færst hefur í vöxt að erlendar konur komi hingað til lands í stuttan tíma og stundi vændi. Hlerunum er beitt við rannsókn mála.

Um 80 einstaklingar hafa verið kallaðir til skýrslutöku hjá lögreglunni á Suðurnesjum vegna gruns um kaup á vændi. Fyrr á þessu ári kom hingað til lands kona á fertugsaldri frá Lettlandi og vöknuðu grunsemdir um að hún stundaði vændi hér á landi vegna tíðra ferða til Íslands. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði málið og hleraði meðal annars síma konunnar. 80 menn eru grunaðir um að hafa keypt vændi af konunni og játuðu margir þeirra við skýrslutöku.

„Í þessu tiltekna máli var beitt símhlustun vegna gruns um mannsal og það er auðvitað mjög mikilvægt sönnunargagn í þessu máli,“ segir Guðmundur Baldursson, lögreglumaður hjá lögregluembættinu á Suðurnesjum.

Konan auglýsti komu sína til Íslands meðal annars á vefsíðum og virðast margir hafa sett sig í samband við konuna. Eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 fyrr í þessari viku hefur brotafjöldi vegna kaupa á vændi aukist gríðarlega í ár. Meira fé hefur verið varið í þennan málaflokk innan lögreglunnar og það er að skila árangri.

„Ég held að lögreglumenn allsstaðar hljóti að fagna því að fá tækifæri til að vinna að fleiri og fjölbreyttari málaflokkum,“ bætir Guðmundur við.

Menn á öllum aldri

Það eru menn á öllum aldri sem kaupa vændi á Íslandi. Dæmi eru um að menn undir lögaldri séu kærðir fyrir meint kaup á vændi og jafnframt menn um áttrætt. Um er að ræða menn úr öllum áttum samfélagsins. Eftirspurnin fyrir vændi á Íslandi er mikil en hvernig gengur að sanna brotin?

„Auðvitað er mjög erfitt að sanna hluti nákvæmlega því það er erfitt að vera akkúrat á staðnum þar sem brotið gerist,“ segir Guðmundur. Hann vonar að þau mál sem embættið hefur unnið að í ár rati fyrir dómstóla.

„Vonandi verður sem hæst hlutfall þannig að við fáum skýrar línur.“


Tengdar fréttir

Þekktir og valdamiklir menn kaupa vændi

„Skömmin er þeirra - skömmin er ekki okkar,“ segir íslensk kona sem starfaði í vændi hér á landi um nokkra ára skeið. Hún telur fráleitt að þeir sem kaupa sér vændi séu ekki nafngreindir.

Íslenskir feður kaupa vændi fyrir syni sína

Kona á miðjum aldri sem fór að stunda vændi fyrir nokkrum árum verður í viðtali við í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Konan er nú hætt og segist aldrei ætla að selja líkama sinn aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×