Jón Gnarr er ekki bara grínið uppmálað 5. apríl 2013 16:00 Bettina er enn heillaðri af Jóni eftir hádegisverðinn. Það kom henni einna mest á óvart að hann skyldi ekki segja brandara í öðru hverju orði. „
Það kom mér mest á óvart hvað hann var alvarlegur. Ég hafði búist við að hann myndi segja brandara í öðru hverju orði en svo var ekki," segir Bettina Enriquez um fund sinn með borgarstjóra Reykjavíkur, Jóni Gnarr. Bettina vann hádegisverðinn í leik Jóns á Facebook-síðu sinni nú í janúar. Hittingurinn átti sér stað sunnudaginn 24. mars þegar Bettina var stödd hér á landi með vinkonu sinni, en hún er búsett í New York. Hún hefur lengi verið mikill aðdáandi borgarstjórans og aðdáun hennar jókst bara við það að hitta hann og ræða um heimsmálin. „Hann hefur mikla ástríðu fyrir því að breyta heiminum til hins betra og með mun sterkari skoðanir á mikilvægum málefnum en ég hafði búist við. Hann er ekki bara grínið uppmálað," segir hún. Það var vel tekið á móti Bettinu og vinkonu hennar, Isabellu Sarmiento, í Ráðhúsinu þegar þær mættu á fund borgarstjóra. Jóhanna Jóhannsdóttir, eiginkona Jóns, mætti á svæðið og gaf vinkonunum íslenskt páskaegg sem vakti mikla lukku. Þá fór Jón með þær í skoðunartúr um húsið sem Bettina hefur orð á að sé rosalega nýtískulegt og glæsilegt, áður en sest var til borðs og hópurinn gæddi sér á glæsilegri þriggja rétta máltíð. Á eftir var þeim svo boðið með borgarstjóranum og fylgdarliði hans á Kjarvalsstaði þar sem hann flutti ávarp við opnun fjörutíu ára afmælissýningar safnsins. „Það voru allir svo elskulegir og yndislegir. Ég kom með miklar væntingar á þennan fund og hann stóð algjörlega undir þeim og rúmlega það, eins og reyndar Íslandsferðin öll," segir Bettina sem kolféll fyrir landi og þjóð í fjögurra daga langri heimsókninni. „Ég get ekki beðið eftir að koma aftur," segir hún spennt. tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Það allra heitasta í sumarförðuninni Tíska og hönnun Aron segist hættur í ClubDub Lífið Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Lífið „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Orsakir flösu og áhrifarík meðferð Lífið samstarf Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Lífið Hvar eru þau nú? Lífið Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Lífið Hildur Yeoman lofuð í hástert á Style Bubble Lífið Vilja stimpla sig inn með stæl Lífið Fleiri fréttir Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Aron segist hættur í ClubDub Ragga nagli í hlutverk fjallkonu í Danmörku Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Er með gervigreindarþjálfara Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Bergþór Másson selur slotið á ný Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Hvar eru þau nú? Myndaveisla: Á bólakafi að skoða fiska á Sjómannadaginn Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Sirkushundur skemmtir ferðamönnum á Höfn í sumar Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Valerie Mahaffey er látin Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sjá meira