Lífið

Gefur út myndasögubók fyrir fullorðna

Ása Ottesen skrifar
Bjarni Hinriksson fangar útgáfu bókarinnar Skugginn af sjálfum mér í bókabúðinni Útúrdúr í kvöld.fréttablaðið/pjetur
Bjarni Hinriksson fangar útgáfu bókarinnar Skugginn af sjálfum mér í bókabúðinni Útúrdúr í kvöld.fréttablaðið/pjetur fréttablaðið/pjetur
„Ég ætla formlega að gefa út myndasögubók sem ég hef unnið að lengi. Ég á von á því að það komi eitthvað af fólki til þess að fagna með mér og þetta verður án efa skemmtilegt kvöld,“ segir Bjarni Hinriksson, myndasögumaður og grafískur hönnuður, sem fagnar í kvöld formlegri útgáfu bókar sinnar, Skugginn af sjálfum mér.



Skugginn af sjálfum mér er myndasaga fyrir fullorðna og segir frá Kolbeini Hálfdánssyni myndasöguhöfundi, sem er í fríi á Kanaríeyjum ásamt tíu ára syni sínum. Feðgarnir þvælast um Kanaríeyjar og velta fyrir sér ýmsu smálegu, meðal annars möguleikanum á lífi án hugsana, uppruna og afdrifum frumbyggja eyjanna, áhrifum ástarinnar á geimferðir og hitastigi vatnsrennibrautanna í Aqualand.



Hugmyndin að bókinni kom þegar Bjarni fór að skrifa stuttar ferðasögur af sér og syni sínum. Tilgangurinn var að skrásetja daglegt líf þeirra feðga. „Í gegnum árin hefur sagan þróast þannig að þótt hún byggi á sjálfsævisögu, þá færðist hún í að vera hrein skáldsaga með tilvísunum í það sem ég þekki úr mínu lífi,“ segir Bjarni um inntak bókarinnar. Útgáfuhófið verður haldið í bókabúðinni Útúrdúr í kvöld milli fimm og sjö.



Bjarni segir að hann hafi valið þennan stað af sérstakri ástæðu. „Það er við hæfi að hún sé kynnt á þessum stað sem er vettvangur fyrir listir af mörgu tagi. Myndasagan er á mörkum ýmissa miðla og er svolítið sérstök í forminu eins og Útúrdúr,“ segir Bjarni sem ætlar jafnvel að bregða sér á kaffihús með syni sínum eftir frumsýningarpartíið. „Ég ætla að sjá hvert þessi fögnuður leiðir mig, ég mun án efa gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Bjarni að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.