Eyþór tryllti lýðinn í gamla grunnskólanum 11. febrúar 2013 21:00 Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Mynd/Vilhelm "
Krakkarnir öskruðu þvílíkt þegar Eyþór gekk inn í salinn og ég veit ekki hvert þau ætluðu þegar hann tók lagið en þau kunnu að sjálfsögðu öll að syngja með Ég á líf," segir Valgeir Magnússon, umboðsmaður Eyþórs Inga Gunnlaugssonar, Eurovisionfara. Sænska ríkissjónvarpið var statt hér á landi fyrir helgi og fylgdi Eyþóri Inga eftir í tvo daga. Tilgangur heimsóknarinnar var að taka upp efni til að nota í 40 sekúndna langa kynningu sem verður sýnd áður en Eyþór stígur á Eurovisionsviðið í Malmö 16. maí næstkomandi. Bróðurparti föstudagsins varði hópurinn á heimaslóðum Eyþórs á Dalvík þar sem þeir fylgdu honum út á sjó, í hesthúsið og loks í barnaskólann á Dalvík þar sem hann sótti sjálfur nám á sínum yngri árum. Nemendur skólans tóku Eyþóri vel og nýttu tækifærið til að fá eiginhandaráritanir í leiðinni. Á miðnætti á föstudaginn mættu Eyþór og sænska föruneytið svo á Enska barinn í Austurstræti þar sem kappinn tók nokkur vel valin lög við gríðargóðar undirtektir viðstaddra. Barinn var stappaður af fólki og vel tekið undir í söng og dansi. Allt ætlaði svo um koll að keyra þegar Eyþór tók Eurovision-framlagið sjálft, Ég á líf.
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Laufey á landinu Lífið Fleiri fréttir Kristmundur Axel tók við af Bubba Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Sjá meira