Lífið

Mig langar í börn en ekki stór leggöng

Stjörnubarnið og tískugúrúinn Kelly Osbourne prýðir forsíðu júlíheftis Cosmopolitan. Þar talar hún lífið með unnusta sínum Matthew Mosshart en þau trúlofuðu sig í laumi fyrir hálfu ári.

Kelly segir þau Matthew vera farin að huga að fjölskyldu þó Kelly sé ekki tilbúin til að fórna líkama sínum.

Hress!

“Mig langar í börn en mig langar ekki að fá risastór leggöng,” grínast Kelly með. Hún segir Matthew vera hinn eina rétta.

Dúllupar.

“Hann vill bara elska mig og ég vil bara vera elskuð af honum. Allir aðrir gaurar sem ég hef deitað hafa viljað eitthvað frá mér. Þeir hringdu í fólk sem ég þekkti og báðu um greiða. Ég varð að segja þeim að það kæmi þeim ekki langt að segja við fólk að þeir væru kærastarnir mínir.”

Yfir sig ástfangin.

Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.