Kolbeinn stendur Zlatan, Ronaldo og van Persie framar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. september 2013 07:00 11 mörk í 17 leikjum. Kolbeinn Sigþórsson hefur skorað í þremur síðustu landsleikjum sínum og nálgast óðum markahæstu landsliðsmenn Íslands frá upphafi. Fréttablaðið/Valli
Kolbeinn Sigþórsson tryggði íslenska landsliðinu 2-1 sigur á Albaníu í fyrrakvöld og um leið komst íslenska liðið upp í annað sætið í riðli sínum í undankeppni HM í Brasilíu 2014. Íslenska landsliðið hefur getað treyst á framherja sinn þegar hann hefur verið heill en Kolbeinn hefur nú skorað 11 mörk í 17 landsleikjum eða 0,65 mörk að meðaltali í leik. Kolbeinn kemur vel út í samanburði við frægustu framherja Evrópu þegar kemur að því að skora fyrir landsliðið sitt. Fréttablaðið athugaði tölfræði kappa eins og Davids Villa, Zlatans Ibrahimovc, Robins van Persie, Marios Balotelli og Cristianos Ronaldo en enginn þeirra er með betri tölfræði í landsliðsbúningnum. Þetta er ekki tæmandi listi og allir hafa þessir stjörnuframherjar líka skoraði mun fleiri landsliðsmörk en Kolbeinn enda eldri og reyndari. Það er reyndar einn framherji í Evrópu sem er með betri tölfræði í landsliðsbúningnum en Kolbeinn. Mexíkómaðurinn Javier Hernández hefur skorað 35 mörk í 53 landsleikjum eða 0,66 mörk í leik. Menn eins og Lionel Messi, Neymar eða Luis Suárez ná hins vegar ekki að slá íslenska landsliðsframherjanum við. Það er bara Ríkharður Jónsson sem hefur verið fljótari í tíu mörkin en Kolbeinn. Kolbeinn var fjórtán leikjum á undan Eiði Smára Guðjohnsen, sem er markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins með 24 mörk. Ríkharður skoraði 17 landsliðsmörk og átti metið í 59 ár. Kolbeinn hefur misst af mörgum landsleikjum vegna meiðsla og það hefur verið helsti óvissuþátturinn. Það hefur hins vegar alltaf verið hægt að treysta á að hann skoraði fyrir landsliðið þegar hann er leikfær. Hér að neðan má sjá tölfræði helstu stjörnuframherja Evrópu með landsliðum sínum.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Thun 3-2 | Víkingar fengu færin en sigur var ekki nóg Íslenski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Fleiri fréttir Stefndi í endurkomu en Siggi Raggi og lærisveinar eru úr leik Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Íslendingaliðin Twente og Midtjylland brunuðu áfram í Evrópu Bara hægt að koma Infantino frá völdum með kosningum Gísli Gottskálk meiddist illa á æfingu fyrir fyrsta leikinn Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United ÍBV - Stjarnan | Slagurinn um þriðja sætið Víkingur - Thun | Víkingar þurfa stórsigur Elvis kominn í Bítlabæinn Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Kjartan orðinn leikmaður Brann Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Mark 17 ára trölls, rassinn úti og bikar á loft Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Þoka í Færeyjum veldur vandræðum „Ég er með stærri drauma“ Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Messi kom til baka við mikinn fögnuð áhorfenda Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Öll lið lenda í þessu Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Sjá meira