Grænmetisætur á Íslandi stofna samtök Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 3. maí 2013 10:18 Sigvaldi er umsjónarmaður rokkþáttarins Dordinguls á Rás 2.
Grænmetisætur á Íslandi hafa tekið höndum saman og ákveðið að stofna samtök. Stofnfundurinn verður haldinn á morgun og Sigvaldi Ástríðarson þáttagerðarmaður á RÚV er einn af stofnendum samtakanna. „Það eru nálægt hundrað manns búnir að skrá sig á fundinn,“ segir Sigvaldi, en samtökin hafa enn ekki hlotið nafn. „Það er meðal þess sem kosið verður um á fundinum á morgun.“ Sigvaldi segir grænmetisætur á Íslandi halda hópinn á Facebook-síðu sem telur um 700 manns. Hann á því von á því að samtökin verði fjölmenn. „Þetta eru hagsmunasamtök að fordæmi erlendra samtaka og margt til að berjast fyrir. Meiri virðingu í garð okkar grænmetisætanna, kynna matarvenjur okkar fyrir fólki, kynna lífsstílinn fyrir veitingastöðum. Þú getur varla keypt salat á veitingastað á Íslandi án þess að það sé kjúklingur í því.“ Sigvaldi segir grænmetisætur ekki upplifa fordóma í sinn garð en að margir eigi erfitt með að skilja að sumir hafi öðruvísi matarvenjur en aðrir. „Sumir halda að við lifum bara á kálblöðum og tómötum en það er hlutverk samtakanna að uppfræða almenning,“ segir Sigvaldi, og segir allar grænmetisætur velkomnar á fundinn. „Sjálfur er ég vegan, svona harðasta týpan af grænmetisætu, en þetta er fyrir allar grænmetisætur. Það er mjög mikilvægur punktur. Svo erum við að sjálfsögðu tilbúin að aðstoða fólk sem vill gerast grænmetisætur, en það verður að sjálfsögðu að stíga fyrsta skrefið sjálft.“ Fundurinn hefst klukkan 14 á morgun og verður haldinn í Borgartúni 24. Þá var Sigvaldi í spjalli við Í bítið í morgun ásamt Sæunni Ingibjörgu Marínósdóttur. Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Sjá meira