Innlent

Refsiaðgerðir gegn Færeyingum vegna sóknar í síld

Gissur Sigurðsson skrifar
Færeyingar fara full bratt í síldina að mati Evrópusambandsins.
Færeyingar fara full bratt í síldina að mati Evrópusambandsins.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði í gær til að gripið verði til refsiaðgerða gegn Færeyingum vegna þeirrar ákvörðunar þeirra að að skammta sér einhliða kvóta úr norsk-íslenska síldarstofninum.

Aðgerðirnar gætu falið í sér að færeyskum skipum yrði bannað að landa síld í ríkjum sambandsins og jafnvel að innflutningur á unninni síld þaðan verði bannaður. Á fréttavefnum Scotsman segir að framkvæmdastjórn sambandsins sé einnig að skoða lagalegar hliðar þess að grípa til svipaðra aðgerða gegn Íslendingum og Færeyingum vegna makríldeilunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×