Birgitta kveikti áhuga á Íslandsför Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. júní 2013 08:00 Kanadamaðurinn Roy Albrecht er á Íslandi í leit að griðastað til að segja sínar skoðanir án þess að sæta ofsóknum ráðandi afla. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég veðja tíu dölum á móti einum að ritstjórinn þinn leyfir þér aldrei að prenta þetta viðtal,“ sagði Kanadamaðurinn og rithöfundurinn Roy Albrecht á tjaldstæðinu í Laugardal í gær. Albrecht kvaðst kominn til Íslands í von um fullt tjáningarfrelsi, ólíkt því sem gerist í Kanada þar sem útgefendur séu jafnvel fangelsaðir. Málefnin sem honum eru hugleikin eru áhrif gyðinga í vestrænum samfélögum og helför gyðinga í síðari heimstyrjöldinni – sem hann sagði ekki hafa átt sér stað. „Árið 2010 sá ég viðtal við Birgittu Jónsdóttur í sjónvarpsstöðinni TVO í Ontario í Kanada þar sem hún ræddi IMMI – The Icelandic Modern Media Initiative – sem veitir eins konar pólitískt hæli fyrir blaðamenn og rithöfunda sem verða fyrir árásum vegna skrifa um „stóru stráka glæpamennina“, þessa sem litli maðurinn getur ekki varið sig gegn. Síðan þá hef ég lesið um Ísland og skoðað möguleikann á því að flytja hingað,“ sagði Albrecht, sem kvað margt sem ráðandi öfl vilja ekki að sé í opinberri umræðu. „Þau beita meðal annars ofsóknum með málsóknum þar sem sá efnaminni tapar á endanum jafnvel aleigunni og tíu árum af lífi sínu hvort sem hann vinnur málið eða ekki,“ útskýrði Albrecht. Þegar útsendarar Fréttablaðsins rákust á Albrecht í Laugardal kvaðst hann hafa verið þar í viku. Vegna lasleika og síðan hryssingslegs veðursins hafi hann að mestu haldið sig í hlýjunni í tjaldinu. „Heima í Ontario eru hlutirnir eins og klukkuverk. Hér er allt síbreytilegt og mjög ruglandi. Eilífur dagur og sólin brýst jafnvel fram klukkan ellefu að kvöldi,“ sagði Albrecht. Foreldrar Albrechts voru að hans sögn Þjóðverjar sem hröktust á flótta frá Súdetahéruðunum. Hann kvaðst gjarnan vilja setjast að í Þýskalandi jafnvel þótt þar í landi væru enn strangari viðurlög en í Kanada við því að tjá sig um málefni gyðinga. Það væri hins vegar torsótt. „Ég er alls ekki kynþáttahatari,“ ítrekaði Albrecht. „En vestræn samfélög hvítra manna eru mjög sérstök og þeir eiga rétt á að vernda þau. Ekki leyfa Kínverjar Evrópubúum að setjast að í sínu landi í stórum stíl,“ sagði Albrecht, sem kvaðst afar hrifinn af Íslendingum. „Miðað við hinn almenna Kanadamann er hinn almenni Íslendingur algjörlega af efstu hillu. Við fyrstu sýn virðist mér vera hágæða mannkyn hér á Íslandi,“ segir Roy Albrecht, sem enn sem komið er hefur lítið farið úr tjaldi sínu í Laugardal.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira