Söngvarinn Justin Timberlake þykir líklegur aðalkynnir næstu Óskarsverðlaunahátíðar.
Hátíðin fer fram 2. mars á næsta ári, en það er heldur seinna en vanalega. Ástæða þess að hátíðinni hefur verið seinkað er sú að Vetrarólympíuleikarnir verða haldnir í Rússlandi í febrúar, og slíkt gæti stolið athygli frá stjörnunum í Hollywood.
Þrálátur orðrómur um Timberlake í stöðu aðalkynnis hefur ná nýjum hæðum, en skiptar skoðanir eru á frammistöðu síðasta kynnis, grínistans Seth MacFarlane, en mörgum þótti hann heldur grófur fyrir þessa formföstu hátíð.
Timberlake, sem sendi á dögunum frá sér breiðskífuna The 20/20 Experience, þykir fyndinn og hress, og ekki skemmir fyrir hversu glæsilegur hann þykir í jakkafötum með bindi. Þá kann hann bæði að dansa og syngja, sem allt kæmi að góðum notum í starfinu.

