Lífið

Konur geta ekki öðlast allt

Leikkonan og framleiðandinn Drew Barrymore er alltaf á fullu en segist þó hafa þurft að fórna mjög miklu síðan hún eignaðist dótturina Olive í september í fyrra.

"Ég þarf að hafna ýmsu og það er miður. Þetta snýst mikið um fórnun. Ég veit að það lítur út eins og ég geri allt en það er mjög margt sem ég hef þurft að gefa frá mér. Og ég er glöð að ég gerði það," segir Drew í viðtali við Us Weekly og bætir við að hún sjái aldrei eftir þeirri ákvörðun að eignast barn.

Kjarnakona.
"Ég var því miður alin upp af kynslóð sem hélt því fram að konur gætu öðlast allt. Ég held að það sé ekki möguleiki. Stundum þarf maður að hafna hlutum en það sem situr eftir verður mikilvægara fyrir vikið. Það eru gleðifréttir," segir Drew.

Með Olive litlu.
Með sínum heittelskaða, Will Kopelman.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.