Efnameira fólk hefur forgang í augnaðgerðir María Lilja Þrastardóttir skrifar 17. maí 2013 07:00 Í febrúar í 2012 voru 710 einstaklingar á biðlista eftir aðgerð á augasteini, borið saman við þá rúmlega 1200 sem nú bíða. Er um sjötíu prósent fjölgun að ræða.
Rúmlega tólfhundruð einstaklingar voru á biðlistum fyrir skurðaðgerð á augasteini í febrúar samkvæmt úttekt Landlæknisembættisins. Samkvæmt heimildum blaðsins fjölgar jafnt og þétt í hópi þeirra sem bíða. Um sjötíu prósenta fjölgun hefur orðið á biðlistum frá því á sama tíma í fyrra. Aðeins eru gefin leyfi fyrir ákveðnum fjölda niðurgreiddra aðgerða ár hvert. Tvö fyrirtæki eru í samningi við ríkið auk Landspítalans, Sjónlag og Lasersjón. „Við sjáum fram á að klára okkar kvóta í júní. En vildum gjarnan þjónusta fleiri. Þetta eru mjög þakklátar aðgerðir og þörfin brýnni nú en áður,“ segir Eva María Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri hjá Lasersjón. Kostnaður við aðgerð af þessu tagi er um hundrað og fimmtíu þúsund krónur, fyrir hvort auga. Fólki stendur til boða að kaupa þjónustuna án aðkomu ríkisins. Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá Sjónlagi, segir að slíkt sé ekki þróun í rétta átt. „Það býður upp á misskiptingu sem við viljum ekki sjá innan heilbrigðiskerfisins. Meðalaldur þjóðarinnar hækkar og við verðum því að horfast í augu við nýjar leiðir til þess að viðhalda lífsgæðum fólks,“ segir Kristinn. Hann bendir jafnframt á að með nýjum reglum Sjúkratrygginga, sem innleiddar voru síðasta sumar, leyfist fólki aðeins að skrá aðgerð á einu auga á biðlista. Breytingarnar hafi í för með sér verulega skert lífsgæði þeirra sem bíði aðgerðar á hinu auganu og dæmi eru um að allt að ár líði á milli aðgerða hjá sömu manneskjunni. „Fólk þarf meðal annars að fá ný gleraugu á meðan það bíður og slíkt hefur ákveðinn kostnað í för með sér. Fyrir utan álagið sem fylgir því að hafa bara um hálfa sjón,“ segir Kristinn. Athygli vekur að fjöldi aðgerða á ári hefur dregist saman um þrjátíu og sex prósent frá árinu 2010. Samkvæmt skýrslu Landlæknisembættisins má rekja það til sameiningar St. Jósefsspítala og Landspítala. Á St. Jósefsspítala voru gerðar 673 skurðaðgerðir á augasteini árið 2010. Aðgerðum á Landspítala hefur hins vegar ekki fjölgað eftir sameiningu. „Við erum með sérhæft starfsfólki og fullkomna skurðstofu sem við notum einu sinni í viku. Það er ömurleg nýting,“ segir Kristinn.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira