Sagði nauðgunarbúðir hafa verið nauðsyn Svavar Hávarðsson skrifar 17. maí 2013 07:00 Kóresk kona, sem hneppt var í kynlífsánauð í stríðinu, mótmælir orðum borgarstjórans. fréttablaðið/ap
Borgarstjóri japönsku borgarinnar Osaka, hinn þjóðernissinnaði formaður Japanska umbótaflokksins Toru Hashimoto, segist standa við þá skoðun sína að nauðsynlegt hafi verið fyrir hermenn landsins að halda þúsundum kvenna í kynlífsánauð í síðari heimsstyrjöld. Slíkt hafi verið nauðsynlegt til að viðhalda aga og veita þeim slökun. Hann segir að hins vegar hefði hann átt að taka tillit til þess hvernig skoðunum hans yrði tekið á alþjóðlegum vettvangi. Fórnarlömb kynferðisglæpa japanskra hermanna voru aðallega frá Kóreu og Kína og er talið að ekki færri en 200.000 konum hafi verið haldið nauðugum sem kynlífsþrælum. Þarlend stjórnvöld hafa fordæmt yfirlýsingar Hashimotos en hann segir á móti að kynlífsþrælkun hafi verið viðtekin venja herja í síðari heimsstyrjöld og ósanngjarnt að heimfæra kerfisbundna kynferðisglæpi eingöngu upp á japanska herinn. Upphaf deilunnar á rætur að rekja til þess að Hashimoto gaf það í skyn við foringja bandaríska hersins í Japan, sem í eru um 50.000 hermenn, að þeir ættu að nýta sér þjónustu vændiskvenna í meiri mæli. Það taldi hann að myndi fækka afbrotum bandarískra hermanna í landinu, sem hafa verið tilefni andúðar eyjarskeggja.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Sjá meira