Innlent

Milljón manna flutt á brott

Fellibylurinn eyðilagði heimili þúsunda þegar hann gekk á land.
Fellibylurinn eyðilagði heimili þúsunda þegar hann gekk á land. nordicphotos/afp

Fellibylur gekk yfir strandsvæði Bangladess í gær. Tólf eru látnir og þúsundir húsa hafa eyðilagst svo um milljón íbúar strandsvæðanna hafa neyðst til að flýja. Í frétt BBC kemur fram að veðrið náði ekki þeim styrk sem óttast var, en fellibylurinn gengur undir nafninu Mahasen.

Þegar veðrið skall á náði vindstyrkurinn um 100 kílómetrum á klukkustund með mikilli rigningu og flóðum. Sameinuðu þjóðirnar höfðu varað við því að yfir átta milljónir manna væru í hættu vegna veðursins á stórum svæðum í Bangladess, Búrma og norðausturhluta Indlands. Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í Bangladess hafði tæplega ein milljón manna verið flutt frá ströndinni í 3.200 neyðarskýli.

Flugvöllum í Chittagong, einni stærstu borg landsins, og í ferðamannahéraðinu Cox Bazar var lokað. Skólar og hótel hafa verið gerð að neyðarskýlum og voru troðin af fólki á meðan stormurinn lét sem verst. Hann var talinn ganga niður að mestu í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×