Innlent

Flækjan á Vatnsenda klýfur meirihlutann

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Guðríður Arnardóttir
Guðríður Arnardóttir

Nýr meirihluti myndaðist í bæjarstjórn Kópavogs þegar breyttu aðalskipulagi var frestað vegna óljóss eignarhalds á Vatnsenda. Oddvitar allra meirihlutaflokkanna urðu undir þegar tveir sjálfstæðismenn og minnihlutinn ákváðu frestun málsins.

Meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs klofnaði á þriðjudag þegar afgreiða átti nýtt aðalskipulag. Gunnar I. Birgisson og Aðalsteinn Jónsson, tveir fjögurra bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, sögðu „óverjandi“ að fella út deiliskipulag í Stapaþingi og Trönuþingi eins og gera ætti. Það myndi rýra verulega verðmæti lands sem bærinn hefði tekið eignarnámi til að nýta sem byggingarland. „Að auki er mögulegt að slíkur gjörningur geti skapað Kópavogsbæ skaðabótaskyldu gagnvart eigendum Vatnsenda þar sem deilur um hagsmuni fyrri eigenda fría ekki Kópavogsbæ frá gerðum samningum og skuldbindingum vegna eignarnáms jarðarinnar,“ sögðu Gunnar og Aðalsteinn.

Guðríður Arnardóttir úr Samfylkingu lagði þá til fyrir hönd minnihlutans að auglýsingu aðalskipulagsins yrði frestað þar til lögfræðiálit lægi fyrir um hvort umræddar breytingar hefðu áhrif á stöðu bæjarins gagnvart fyrri samningum og framtíðarefndum. „Í kjölfar nýlega fallins dóms Hæstaréttar um eignarhald á Vatnsenda er það mat undirritaðra að öll skref er tengjast samskiptum við landeigendur á Vatnsenda skuli stíga með mikilli gát,“ sagði í tillögu Guðríðar og fjögurra annarra bæjarfulltrúa. Frestunartillaga minnihlutans var samþykkt með þeirri breytingu – sem Gunnar lagði til – að fengin yrðu tvö lögfræðiálit en ekki aðeins eitt.

„Það eru fáheyrð vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð á þessum fundi,“ bókaði Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks og samherji þeirra Gunnars og Aðalsteins í meirihlutasamstarfinu. „Sjálfstæðisflokkurinn þarf að líta vel í eigin barm varðandi þau vinnubrögð sem hér hafa verið ástunduð,“ sagði Ómar sem kvað ófaglegt að fresta aðalskipulagi. „Unnið var af heilindum að aðalskipulagi frá upphafi til þessa dags. Það er því með ólíkindum að við stöndum í þessum sporum hér á lokametrunum og tek ég undir orð Ómars,“ bókaði Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-listans sem er í meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk.

Oddviti sjálfstæðismanna, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, var á móti frestuninni. Betra hefði verið að auglýsa tillöguna eins og hún var afgreidd af öllum flokkum úr skipulagsnefnd og óska eftir lögfræðiáliti á meðan skipulagið væri í auglýsingu. Guðríður Arnardóttir sagði mikla hagsmuni í húfi. Frestun á málinu um tvær vikur væri léttvæg í því samhengi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×