Í svartnættinu er myrkrið mest Ellý Ármanns skrifar 6. febrúar 2013 20:30 Hildur Lilja Guðmundsdóttir og annar sonur hennar en hún á tvo drengi.
Hildur Lilja Guðmundsdóttir 26 ára náttúrufræðingur, birti í dag pistil á vefnum Foreldrahandbokin.is þar sem hún segir konur með fæðingarþunglyndi hér á landi fá litla sem enga hjálp en hún lýsir samskiptum sínum við FBM kerfið á Landspítalanum sem ætlað er að taka á vanda kvenna sem þjást af fæðingarþunglyndi.Í pistli Hildar stendur meðal annars: "Ég hef hingað til leitað til geðdeildar Landspítalans þar sem ég hitti sálfræðing úr FBM-teyminu en ég veit ekki hvort að það hafi gert mér gott eður ei. Samskipti milli sálfræðinga í teyminu hafa ekki skilað sér sem skildi, sá sem sér um mín mál hefur gleymt að setja inn lyfseðil fyrir lyfinu mínu og les sjaldan tölvupóst. Ég varð nánst uppiskroppa með lyf og einu sinni var ég búin að bóka tíma í gegnum tímabókunarkerfið en þegar ég mætti á staðinn eftir eins og hálfs tíma akstur til höfuðborgarinnar kom í ljós að bókunin hafði ekki skilað sér. Fyrir höfuðborgarferðina hafði ég einnig sent tölvupóst þess efnis að mér liði verulega illa og sæi ekkert ljós í lífinu. Ég hef ekki enn fengið svar við þeim tölvupósti og í dag eru liðnar þrjár vikur síðan."Misgóðir dagar"Það koma góðir dagar þar sem ég horfi á yngsta drenginn minn og fyllist ást og lotningu. Hugsa með mér að ég gæti ekki verið án hans. Þá finnst mér dagleg verkefni auðveld og nýt þess að eiga samskipti við eldri strákinn minn. Síðan koma einnig slæmir dagar. Þá horfi ég á yngsta soninn og þoli ekki tilhugsunina um tilvist hans. Ég finn að það er rangt að hugsa svona, veit að það sé ekki heilbrigt, enda er ég að reyna að laga það. En það er meira en að segja það. Stundum finnst mér ég vera að drukkna, finnst ég troða marvaða út í hið endalausa og sé ekkert land fram undan. "Lægi inni í rúmi skjálfandi ef ekki væri fyrir eiginmanninn "Ef það væri ekki fyrir manninn minn veit ég ekki hvar ég væri stödd. Ég lægi líklega inni í rúmi, skjálfandi af kvíða og ófær um að hugsa um börnin mín. En ég kvíði nær hverjum degi að eitthverju leyti, stundum svo mikið að ég skelf öll, get ekki hugsað og finnst ég eiga erfitt með andardrátt. Mig langar svo að líða vel, mig langar svo að líða eins og ég mér leið áður en ég varð ólétt, ég þrái einn auðveldan og kvíðalausan dag."Lesa pistil Hildar í heild sinni hér (Foreldrahandbokin.is).
Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Sjá meira