Innlent

Þingfundi frestað fram á morgundag

Þingfundi hefur verið frestað til klukkan hálf tvö á morgun en forseti Alþingis frestaði fundi klukkan ellefu í kvöld. Þá var búið að fresta þingfundum sex sinnum í dag.

Enn reyna formenn þingflokkanna að komast að samkomulagi um lok þingsins, en þeir Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, lögðu í dag fram dagskrártillögu á Alþingi um að á næsta þingfundi yrðu frumvörp um kísilver á Bakka og uppbyggingu innviða sett fremst á dagskrána.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×