Innlent

„Algjörlega ábyrgðarlaust“

UE skrifar
Júlíus Vífil Ingvarsson og Dag B. Eggertsson greinir á um  hvort málið sé í eðlilegum farvegi.
Júlíus Vífil Ingvarsson og Dag B. Eggertsson greinir á um hvort málið sé í eðlilegum farvegi.
Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn, telur að afgreiðsla borgarráðs á deiliskipulagi fyrir flugstjórnarmiðstöðina hafi tafist óeðlilega. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að málið sé í eðlilegum farvegi.

Flugstjórnarmiðstöðin sækist eftir breytingu á deiliskipulagi til þess að stækka húsnæði sitt. Umsókn Isavia um stækkun á flugstjórnarmiðstöðinni við Nauthólsvíkurveg er til umfjöllunar í borgarráði Reykjavíkur.

Verkefnið felur í sér 2.600 fermetra stækkun á núverandi húsnæði sem er 3.126 fermetrar að stærð. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið nemur tæpum milljarði króna og greiða notendur flugleiðsöguþjónustunnar á Norður-Atlantshafi stærstan hluta hans í samræmi við þjónustusamning Isavia við Alþjóðaflugmálastofnunina.

Flugstjórnarmiðstöðin veitir flugleiðsöguþjónustu ásamt fjarskiptamiðstöðinni í Gufunesi á íslenska flugstjórnarsvæðinu sem er um 5,4 milljónir ferkílómetra að stærð og er eitt hið stærsta í heimi.

Málið hefur verið samþykkt af umhverfis- og skipulagsráði en bíður afgreiðslu borgarráðs.  

„Ég hef fyrir því öruggar heimildir að borgin sé að nota afgreiðslu deiliskipulagsins fyrir flugstjórnarmiðstöðina til að þrýsta á ríkisstjórnina að semja um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Starfsemi flugstjórnarmiðstöðvarinnar kemur Reykjavíkurflugvelli ekkert við. Flugstjórn á þessu stóra svæði getur verið hvar sem er og nokkur önnur lönd sem hafa áhuga á að taka þessa starfsemi yfir enda skaffar hún miklar tekjur í erlendri mynt.

Það er algjörlega ábyrgðarlaust að nota þetta skipulag sem snýr að því að tryggja flugöryggi á einu af stærstu flugstjórnarsvæðum í heiminum sem tæki til að ná samningum við ríkið,“ segir Júlíus Vífill. 

Dagur B. Eggertsson er ósammála þeirri útleggingu Júlíusar Vífils að verið sé að nota deiliskipulagið fyrir flugstjórnarmiðstöðina til að þrýsta á ríkið.

„Ég held að málið sé í algjörlega eðlilegum farvegi. Umhverfis- og skipulagsráð bókaði að það þyrfti að skoðast í samhengi við önnur mál á svæðinu. Þetta er eitt af þeim málum sem eru í viðræðum innanríkisráðuneytisins og borgarinnar,“ segir Dagur í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×