Innlent

Sigurlíkur Íslands sagðar 1 á móti 125

Jóhannes Stefánsson skrifar
Veðbankar hafa ekki mjög mikla trú á framlagi Íslands.
Veðbankar hafa ekki mjög mikla trú á framlagi Íslands. Mynd/ AFP

Samkvæmt veðmálasíðuni Paddy Power eru sigurlíkur Íslands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva heldur litlar, eða 1 á móti 125. Líklegastir eru danir til að vinna með sigurlíkurnar 4 á móti 6. Framlag Spánar og Frakklands eru ólíklegustu sigurvegararnir með sigurlíkurnar 1 á móti 250.

Markmið íslensku keppendanna ku þó ekki hafa verið að fara með sigur af hólmi, en Eyþór Ingi sagði stærsta sigurinn hafa verið þann að fá að taka þátt í úrslitakvöldinu með lag á Íslensku. Frammistaða Íslands í keppninni þótti engu að síður afbragðsgóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×