Innlent

Dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir líkamsárás

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Í dómi Héraðsdóms segir að maðurinn eigi sér engar málsbætur.
Í dómi Héraðsdóms segir að maðurinn eigi sér engar málsbætur. mynd/pjetur
45 ára karlmaður var dæmdur í 9 mánaða fangelsi í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás.

Í dómnum kemur fram að aðfaranótt fimmtudagsins 6. september 2012 hafi maðurinn ráðist á fyrrverandi unnustu sína þar sem hún lá í rúmi í svefnherbergi á heimili sínu. Ákærði settist klofvega yfir konuna, sló hana í höfuð, andlit og hendur og skellti höfði hennar í gólf svefnherbergisins.

Þá sparkaði hann í líkama konunnar, en hún hlaut mar, yfirborðsáverka og eymsl víðsvegar á höfði og andliti, áverka á vinstra eyra, eymsl á hálsi, mar á brjóstkassa og vinstri síðu, mar á hægri upphandlegg og mar, bólgur og tognun á vinstri hendi. Ákærði neitaði sök og sagðist einungis hafa löðrungað brotaþola þessa nótt með flötum lófa. Hafi hún ekki hlotið áverka af.

Brotaþoli féll frá eftir að hún lagði fram kæru á hendur ákærða fyrir líkamsárás. Gaf hún skýrslu hjá lögreglu vegna málsins 3. október 2012. Greindi hún frá því að hún og ákærði hafi verið í sambandi frá árinu 2006. Þau hafi öðru hvoru hætt saman en jafnan tekið saman aftur. Sambandi þeirra hafi endanlega lokið í lok árs 2011. Ákærði hafi neytt fíkniefna í miklum mæli og fljótlega byrjað að beita brotaþola ofbeldi. Hafi hann oft lagt á hana hendur og lögregla oft verið kölluð til. Eftir sambandsslitin í lok árs 2011 hafi ákærði ofsótt brotaþola með símhringingum dag og nótt. Yfirleitt hafi hún ekki svarað símhringingum, en stundum gert það til að ræða við ákærða.

Á sér engar málsbætur

Ákærði á að baki langan brotaferil. Fimm sinnum hefur ákærði gengist undir sáttir fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og einu sinni verið gert að greiða sekt vegna umferðarlagabrots. Þá hefur hann fjórtán sinnum verið dæmdur fyrir brot er varða refsingu samkvæmt almennum hegningarlögum s.s fyrir skjalafals, húsbrot, þjófnað, fjársvik og peningafals auk þess að hafa brotið margítrekað gegn umferðarlögum og oftsinnis verið sviptur ökurétti ævilangt.

Með árásinni rauf ákærði reynslulausn og með hliðsjón af því, sem og alvarleika árásarinnar nú, segir í dómnum að hann eigi sér engar málsbætur og refsingin því ekki bundin skilorði. Auk fangelsisdómsins var maðurinn dæmdur til að greiða 351.800 krónur í sakarkostnað, þar með taldin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, 251.000 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×