Dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 31. október 2013 09:28 Í dómi Héraðsdóms segir að maðurinn eigi sér engar málsbætur. mynd/pjetur
45 ára karlmaður var dæmdur í 9 mánaða fangelsi í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás. Í dómnum kemur fram að aðfaranótt fimmtudagsins 6. september 2012 hafi maðurinn ráðist á fyrrverandi unnustu sína þar sem hún lá í rúmi í svefnherbergi á heimili sínu. Ákærði settist klofvega yfir konuna, sló hana í höfuð, andlit og hendur og skellti höfði hennar í gólf svefnherbergisins. Þá sparkaði hann í líkama konunnar, en hún hlaut mar, yfirborðsáverka og eymsl víðsvegar á höfði og andliti, áverka á vinstra eyra, eymsl á hálsi, mar á brjóstkassa og vinstri síðu, mar á hægri upphandlegg og mar, bólgur og tognun á vinstri hendi. Ákærði neitaði sök og sagðist einungis hafa löðrungað brotaþola þessa nótt með flötum lófa. Hafi hún ekki hlotið áverka af. Brotaþoli féll frá eftir að hún lagði fram kæru á hendur ákærða fyrir líkamsárás. Gaf hún skýrslu hjá lögreglu vegna málsins 3. október 2012. Greindi hún frá því að hún og ákærði hafi verið í sambandi frá árinu 2006. Þau hafi öðru hvoru hætt saman en jafnan tekið saman aftur. Sambandi þeirra hafi endanlega lokið í lok árs 2011. Ákærði hafi neytt fíkniefna í miklum mæli og fljótlega byrjað að beita brotaþola ofbeldi. Hafi hann oft lagt á hana hendur og lögregla oft verið kölluð til. Eftir sambandsslitin í lok árs 2011 hafi ákærði ofsótt brotaþola með símhringingum dag og nótt. Yfirleitt hafi hún ekki svarað símhringingum, en stundum gert það til að ræða við ákærða.Á sér engar málsbætur Ákærði á að baki langan brotaferil. Fimm sinnum hefur ákærði gengist undir sáttir fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og einu sinni verið gert að greiða sekt vegna umferðarlagabrots. Þá hefur hann fjórtán sinnum verið dæmdur fyrir brot er varða refsingu samkvæmt almennum hegningarlögum s.s fyrir skjalafals, húsbrot, þjófnað, fjársvik og peningafals auk þess að hafa brotið margítrekað gegn umferðarlögum og oftsinnis verið sviptur ökurétti ævilangt. Með árásinni rauf ákærði reynslulausn og með hliðsjón af því, sem og alvarleika árásarinnar nú, segir í dómnum að hann eigi sér engar málsbætur og refsingin því ekki bundin skilorði. Auk fangelsisdómsins var maðurinn dæmdur til að greiða 351.800 krónur í sakarkostnað, þar með taldin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, 251.000 krónur.
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira