Innlent

Róbert krefst skýringa frá umhverfisráðherra

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Róbert Marshall vill fara yfir málin með umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni.
Róbert Marshall vill fara yfir málin með umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni. Mynd/Samsett
Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar telur að yfirlýsingar Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfis og auðlindaráðherra, um afturköllun náttúruverndarlaga séu grafalvarlegar sem þarfnist skýringar og rökstuðnings.

„Ég hef þess vegna óskað eftir því að umhverfis- og samgöngunefnd verði kölluð saman hið fyrsta þar sem farið verði yfir málið á opnum fundi með ráðherranum og honum gefið færi á að skýra mál sitt og svara spurningum nefndarmanna,“ segir Róbert á Facebook-síðu sinni í dag.

Ráðherra hefur ákveðið að leggja fram frumvarp á Alþingi þegar þing kemur saman í haust með tillögu um að fella úr gildi hin nýju náttúruverndarlög sem annars tækju gildi 1. apríl 2014

„Ljóst er að huga þarf nánar að veigamiklum atriðum vegna vinnu við gerð nýs frumvarps til laga um náttúruvernd, eins og kom fram í umfjöllun um frumvarp til nýrra náttúruverndarlaga sl. vetur. Hér er um ýmis grundvallaratriði að ræða enda afar mikilvægt að ný náttúruverndarlög feli í sér skýrar skyldur og jafnframt skýra framkvæmd, náttúruvernd til hagsbóta. Er ekki síður mikilvægt að slíkar breytingar séu unnar í sem víðtækastri sátt við haghafa og almenning,“ sagði í tilkynningu umhverfis- og auðlindaráðherra frá því á þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×